Ferðalangarnir Hlín og Gunni
    <language>is</language>
Update á myndum
      <description>Langaði bara að setja stuttan texta um að það væri komið smá myndaupdate í albúmið. Maður þarf ekkert að blogga orðið lengur þar sem allir eru á facebook ;) eða flestir..Var ss að setja inn myndir frá Geysisferð sem ég og pabbi fórum helgina 26-28.mars. Ferðin heppnaðist bara mjög vel þó við hefðum nú ekki komist á Vatnajökul eins og stefnan var. Vorum komnir að jökulrótunum þegar ákveðið var að fara beint niður í Drekagil í skálann þar vegna veðurs. Ferðin annars skemmtileg en færið erfitt, búið að snjóa mikið.Annars er lítið að frétta af mér og Hlín annað en bara lokaritgerðaskrif. Gerist ekki betra. Verður flott að klára þetta þó :)Mbk. G</description>
Long time no see
Blogg og vitleysa
      <description>Jæja kominn tími til að henda smá texta hér inn.Ég var að setja inn myndir úr jeppaferðinni sem ég og Sigmar fórum í Flateyjardal með 4x4 klúbbnum. Fórum á laugardegi snemma morguns og vorum yfir allan daginn. Þetta var alveg mögnuð ferð og gerðist ansi margt skrautlegt. Súkkinn hjá mér dreif þetta nú samt allt og lenti ekkert í neinu basli. Átti í smá erfileikum með árbakkana því það er svo stutt á milli hjóla en það hafðist nú í flestum tilvikum. Þurfti aðeins að kippa í bílinn í einum bakkanum en það telst ekki með. Ég var ekki fastur  Annars er bara allt gott að frétta frá okkur. Ég er að verða vitlaus á allri verkefnavinnunni hjá mér. Skilaði af mér 3 verkefnum seinasta mánudag og þarf að skila 2 næsta mánudag. Og það er eiginlega bara byrjunin. Stærsta verkefni annarinnar er eftir ásamt fleiri öðrum smáverkefnum. (væl væl væl væl)Annars erum við skötuhjú bara búin að hafa það gott og búin að dunda okkur þegar við höfum frían tíma Ég mæli endilega með því að kíkja á myndirnar úr ferðinni. Þetta er án efa allra skemmtilegasta jeppaferð sem ég hef farið í og sú bilanafríasta. Það klikkaði ekkert hjá mér og allt hélst í lagi. Svoleiðis á það að vera ;)Nenni ekki að blaðra meira í bili. Á að vera að læra en það klikkaði eitthvað aðeins. Meistaradeildin og svona,,, ú sí.Kveðja,Gunnsi glanni og Hlína fína :)</description>
Blogg
      <description>Guten tag meine damen und herren..Langaði að setja inn smá færslu hérna þar sem maður hefur verið svo duglegur upp á síðkastið að viðhalda vefnum. (Þetta er ágætis leið til að maður muni hvað maður var að gera á yngri árum þegar maður verður kominn með meiri Alzheimer og man ekki neitt stundinni lengur)Annars er bara allt gott að frétta frá mér og Hlín. Skólinn er kominn vel af stað og maður er farinn að vinna vel fyrir verkefnavinnunni. Önnin hjá mér og Hlín virðist vera svolítið mismunandi þar sem hennar önn virðist fremur afslöppuð en mín er stanslaus keyrsla og fáránleg verkefnavinna. Akkúrat öfugt miðað við hvernig þetta var seinustu önn... Skemmtilegt.Annars er það helsta að frétta að ég er að fara í jeppaferð með Eyfirðingadeild 4x4 klúbbsins hérna fyrir norðan næsta laugardag. Mér skylst á manninum sem skipuleggur ferðina að farið verði í Laugafell ef það verður fært þangað. Farið verður kl 08:00 um morguninn og komið heim seinna um daginn. Það verður fróðlegt að sjá hvað Trölli hefur í stærri jeppana.Jæja ég ætla ekki að blaðra meira í bili þar sem ég á nú víst að vera fylgjast með því sem blessaður Kostnaðarbókhaldskennarinn er að reyna að koma útur sér. Honum tekst það bara ekkert sérlega vel,Með kveðjuGunnar </description>
Kaupstaðarferð
      <description>Ég og Hlín kíktum til Reykjavíkur núna um helgina í smá kaupstaðarferð. Það var stór vísindaferð hjá mér í skólanum og því kjörið að slá til í smá ferðalag.Ég fór með skólanum í Marel og Seðlabankann, svo fór hópurinn í fleiri fyrirtæki einnig sem ég fór ekki í. Mig hlakkaði mikið til þess að fara í Seðlabankann og hafði ég vonað að Dabbi hefði verið búinn að svara bréfinu frá Jóhönnu áður en heimsóknin var, en svo var nú reyndar ekki.Varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum með heimsóknina í Seðlabankann, við vorum sett í einhvern fyrirlestrarsal og þar var bara talað í einn og hálfan tíma og svo ekkert meir. Maður hélt nú að það yrði farinn "túr" í gegnum húsið og maður fengi aðeins að sjá hvernig væri þarna inni. En við fengum ekki einu sinni að fara í gegnum öryggishliðið  Svo seinna um daginn fór ég í Marel með liðinu og það var mjög gaman. Marel og mjög framarlega í sínum geira og var afskaplega skemmtilegt að skoða fyrirtækið hjá þeim. Þar var einmitt svona "walk around" um fyrirtækið sem ég hafði mikið gaman af. Mæli með Marel ef menn komast í vísindaferð þangað.Annars var helgin bara róleg hjá okkur. Hlín fór auðvitað í sínar verslunarleiðangra og ég held hún hafi farið oftar í Kringluna heldur en ég fór á klósettið alla helgina  Ég og pabbi réðumst í smá tiltekt heima og fórum með smá drasl upp í bílskúr upp í Mosó. Gerðist nú bara í fyrsta skipti í ansi langan tíma að við tókum eitthvað úr skúrnum en settum ekki bara inn í hann. En það dót fór nú bara mest allt á haugana.Heimleiðin gekk bara fínt og var heiðskírt mest allan tímann. Ekki meira í bili, Kveðja,</description>
Sól og blíða á Akureyri
      <description>Hæ Hó,Langaði að skrifa smá texta eftir þennan frábæra dag hér fyrir norðan. Það er búið að vera bongó blíiða í allan dag sem var ekki verra þar sem ég fór í stuttann jeppatúr með nokkrum félögum hér á Akureyri. Getið skoðað nokkrar myndir úr ferðinni í myndaalbúminuMaður vonar bara að veðrið haldist eitthvað svona fram í vikuna svo maður geti skotist eitthvað aðeins meir.. Ég og Hlín förum svo suður næstu helgi, það er svokölluð "Stóra Vísindaferðin" í skólanum hjá okkur..Ég held að Hlín ætli ekki í neina ferð en ég var að hugsa um að skella mér í Seðlabankann og í Marel.Verður fróðlegt að sjá ástandið þarna niður í Seðlabanka  Ekkert meira í bili ;)</description>
Bloggurus Ógurlegus
      <description>Jæja gott fólk, ekki allir í stuði?Önnin hjá mér og Hlín er svona rétt að byrja og maður er að byrja finna fyrir álaginu svona hægt og rólega. Ég sé fram á mikla verkefna vinnu hjá mér þessa önnina, miklu meiri en í fyrra þó hún hafi þó verið alveg nóg.En ég fékk loksins útur endurtektarprófinu mínu í Fjármálum og ég náði því sem betur fer. Ekki þó hægt að segja það um meirihlutan af fólkinu sem tók prófið, það féllu sjö eða átta af fimmtán manns sem þreyttu prófið. Hæsta einkunn var 6 ..... Ekki uppbyggilegt það að mínu mati. Annars er bara allt gott að frétta af okkur. Við höfum bara verið að slappa af og hafa það náðugt svona að mestu. Fórum í hressilegan göngutúr í dag og skelltum okkur upp tröppurnar hjá kirkjunni. Hlín setti persónulegt met í sinni fyrstu ferð (hahaha) og fór á 48 sec. Ég lagði ekki í tímatöku að svo stöddu  Ég hef aðeins verið að leika mér að taka myndir upp á síðkastið og mig langaði að henda nokkrum hérna inn. Ég var sérstaklega ánægður með nokkrar myndir sem ég náði af tveimur hestum sem ég og Hlín keyrðum uppað þegar við vorum að rúnta eitthvað í hestahverfinu fyrir utan Ak. Þeir voru bara í rólegheitunum á veginum sem við vorum að keyra, annar var með hnakk á sér nema hann snéri öfugt. Mig grunaði nú strax að hesturinn hefði hent knapanum af baki. Ég fór aðeins útur bílnum og labbaði rólega í áttina að þeim, þeir virtust ekkert vera fælnir við það þannig ég gekk bara örlítið lengra, smellti fullt af myndum i leiðinni. En svo þegar ég var að kíkja í linsuna þá allt í einu tóku þeir á rás í áttina að mér, ég hélt bara áfram að mynda og þeir stöðvuðu svo bara nokkrum metrum fyrir framan mig. Klappaði þeim aðeins og tók fleiri myndir. En svo þegar við vorum að keyra til baka frá þeim þá sjáum við mann með hjálm labbandi á veginum. Ég stoppaði hjá honum og þá auðvitað kom í ljós að þetta var knapinn, hesturinn hafði hent honum af baki. Hann var sjálfsagt um áttrætt karlinn, hann var nú alveg í lagi sýndist mér eftir byltuna  Set nokkrar myndir hérna:Þið getið séð myndirnar sjálfsagt í stærra formi inn á Albúminu.Megið endilega kommenta á myndirnar ef þið hafið áhuga.Jæja annars er það ekki meira í bili.Kveðja, Hlín og Gunni.</description>
Ótitlað
      <description>Gleðilegt nýtt ár.Jæja núna er árið 2008 búið og nýtt ár hafið. Það er ansi langt síðan við skötuhjú höfum skrifað inn á síðuna okkar. Ég held að það væri ekki vitlaust að setja sér þau áramótaheit að vera duglegri að blogga þetta árið. Eða blogga eitthvað yfir höfuð bara.Annars hafa jólin bara verið góð hjá okkur. Hlín fór með fjölskyldunni sinni til Svíþjóðar og eyddu jólunum þar með Magnúsi. Ég var heima bara á klakanum að hafa það náðugt og nýta tímann og vinna í bílunum hjá mér.Ný önn fer svo að byrja í skólanum og vonandi mun hún bara ganga vel. Mér alla vega líst ágætlega á þá áfanga sem ég er að fara í og mér skyldist á Hlín að svo væri líka hjá henni. Við erum alla vega hálfnuð með háskólanámið núna og því "aðeins" eitt og hálft ár eftir. Þetta verður stutt núna hjá mér, ég plata hana Hlín til þess að skrifa eitthvað skemmtilegt fljótlega og jafnvel að setja inn einhverjar myndir.Kveðja, Gunnar Lár.</description>
Dönsku dagarnir á Stykkishólmi
      <description>Jæja þá er önnur viðburðaríka helgin afstaðin Ég og Hlín skelltum okkur á Dönsku dagana á Stykkishólmi. Sigmar og Áslaug,  vinafólk okkar að norðan er ættað þaðan og voru þau búin að lofa hátíðina svo vel að við gátum ekki annað en kíkt.Við fórum á föstudaginn seinasta bara eftir vinnu, ég þurfti reyndar að taka mína með mér og blaðraði í símann alla leiðina liggur við. En á föstudagskvöldinu var ekkert sérstakt veður þannig við fengum gistingu í húsi foreldra hans Sigmars, rosalega flott "norsk" timburhús sem er ekki ósvipað hennar mömmu.Við tókum því svo bara rólega á föstudagskvöldinu og rúntuðum örlítið, vorum ekki alveg að nenna út vegna unglingafyllerís Á laugardeginum kíktum við svo til Grundarfjarðar til foreldra Áslaugar, Sigmar varð eftir að græja og gera fyrir tónleikana sem hann var að fara að spila á um kvöldið.Á Grundarfirði var ekkert af fólki á ferli, komumst reyndar að það var jarðarför í gangi þannig það hefur kannski útskýrt eitthvað. Við horfðum á restina af handboltaleiknum þar sem við gerðum jafntefli við danadjöflana. Við fengum einnig dýrindis vöfflur með. Ég hefði orðið brjálaður ef við hefðum tapað þeim leik, frekar svekkjandi að vera á dönskum dögum og tapa svo fyrir þeim Svo tjölduðum við bara á laugardeginum og vorum í mat hjá mömmu hans Sigmars um kvöldið. Fengum mjög gott lambalæri og allt tilheyrandi með því. Svo var bara farið í bjórinn og legið í honum eitthvað fram eftir kvöldi. Það er kannski ástæðan fyrir því að þegar ég bað um að fá að blása hjá lögreglunni daginn eftir áður en við lögðum að stað að ég fékk bara NEI,  Var ekki hæfur til aksturs næstu 4 tímana samkvæmt löggimann. Hlín var ekki með ökuskirteinið sitt þannig við þurfum bara að doka aðeins við. Tókum góðan labbitúr og ég fékk mér vel að borða og drekka, fór svo og blés aftur eftir rúmann einn og hálfann tíma og þá var ég orðinn góður...En þetta var fín hátið og er ég alveg viss um að kíkja þarna aftur. Skemmtileg stemmning og mjög fallegur bær.Annars er lítið annað að frétta nema við förum auðvitað aftur til Akureyrar næstu helgi, skólinn byrjar á mánudaginn. Þannig við þurfum bara að fara að pakka dótinu okkar og gera okkur tilbúin. Skólinn fer að bresta á Jæja gott í bili,  </description>
Akureyri Flutningar - Taka 2
      <description>Jæja þá erum við flutt enn á ný. Við fórum nú reyndar ekki ýkja langt þetta skiptið. Heldur einungis yfir ganginn í enn stærri íbúð en við vorum í.Fólkið sem bjó á móti okkur, Dallas og Ashley fluttu aftur til Bandaríkjana. Dallas fékk stöðu í Kansas og fluttu þau því með frekar stuttum fyrirvara.Amma og afi hennar Hlínar buðu okkur hina íbúðina því við vorum búin að óska eftir henni ef hún losnaði. Við auðvitað þáðum þetta boð og þó þetta hafi nú ekki verið á fjárhagsplaninu hjá okkur þá sleppir maður auðvitað ekki svona tækifæri.Við ákváðum því að fara seinustu helgi og flytja þar sem skólinn færi nú að nálgast. Hlín og Loftur vildu auðvitað fara að reyna leigja íbúðina sem við vorum í út. Þannig það var bara skellt sér í ferð til Akureyrar. Reyndar var þetta á ágætis tíma því ég þurfti að sinna smá vinnu á Fiskideginum á Dalvík þannig það var hægt að sameina vinnuna og flutningana. En svefninn þurfti reyndar aðeins að líða fyrir þetta samstarf. Ég held ég hafi sofið í um 10 tíma alla blessuðu helgina. En það var seinni tíma vandamál.En Íbúðin sem við fengum er 3 herbergja og töluvert stærri. Íbúðin brann fyrir 1-2 árum og var því allt nýinnréttað í henni og átti allt að vera tipp topp enda stutt síðan okkar fyrrverandi nágrannar fluttu þar inn í nýtt innbú má segja.En það virðist svo sem almennt þriferni og frágangur hafi ekki verið kenndur á heimili þessa fólks í æsku því íbúðin var hreinn viðbjóður eins og þið getið séð í albúminu okkar.Íbúðin leit út eins og ein af subbuholunum í "Allt í drasli" þáttunum nema það var bara búið að taka öll húsgögnin .  Hlín og Loftur voru líka alveg ekki nógu sátt við fráganginn á íbúðinni enda eins og ég sagði, það var allt nýtt!En maður lætur ekki svona sóða og drulluskap stöðva sig, íbúðin var bara tekin og þrifin frá a-ö og ekkert skilið útundan. Helgin sem átti að snúast um að flytja dótið okkar yfir snérist sem sagt um að liggja á gólfinu eða innan í bökunarofninum að skrúbba drullu eftir aðra. En núna er íbúðin alla vega hrein og fín og manni líður vel þar inni.Við náðum ekki að koma okkur alveg fyrir en stóru hlutirnir eru alla vega komnir á sinn stað. Svo verður bara farið í að raða smáhlutunum þegar skólinn byrjar.Ég og Hlín erum rosalega spennt fyrir þessari íbúð þar sem hún bíður upp á meiri möguleika og hægt að gera meira fyrir hana. Það verður líka frábært að fá aukaherbergi þar sem hægt er að loka sig af og læra stundunum saman.En við erum bara ofboðslega fegin að þetta sé búið og núna getum við farið að gera íbúðina snyrtilega og koma öllu rétt fyrir.Kveðja.Skúringa-gaurarnir!</description>
Verslunarmannahelgin afstaðin
      <description>Jæja þá er verslunarmannahelgin búin.Ég og Hlín brugðum okkur bara til Akureyrar yfir versló og höfðum það bara gott. Við byrjuðum örlítið að pakka og ganga frá þar sem við erum að flytja inn í íbúðina hinu megin við ganginn. Svaka flutningar það Við erum samt mjög spennt fyrir að fá eitt auka herbergi og íbúð sem er öll nýinnréttuð. Guðjón bróðir útvegaði mér einmitt líka þennan frábæra sófa svo þetta verður held ég bara mjög flott þarna hjá okkur.Þess má geta að baðherbergið okkar verður núna með glugga þannig að ég sé kannski eitthvað á spegilinn þegar ég raka mig Annars styttist bara óðum í skólann og ég held að við séum bæði tvö bara spennt fyrir því að byrja aftur. Auðvitað skrýtið að fá svona frí frá skólanum í 3 mánuði en maður verður bara að koma endurnærður til baka.Hlín verður svo gerð að einka-bílstjóra í september og nóvember þar sem ég fer í aðgerð á ónýta apparatinu sem nefnist víst öðru nafni ökklinn á mér.  Þannig Hlín fær þá líka góða æfingu í að keyra sjálf og auðvitað sinn heittelskaða því hann verður í gipsi í 2-4 vikur. Voða fínt Meira er það nú ekki í bili held ég, fínt að reyna að blogga svona annað slagið þó enginn lesi þetta. Þetta æfir mann bara í að rita vandað mál og svo maður lendi nú ekki í því að byrja nota orð eins og eikka og hva segiru mar ? geggt ! </description>
Ótitlað
      <description>Sælinú,Mikið getur nú verið erfitt að muna eftir þessu blessaði bloggi. Það er ekki eins og maður sitji nú ekki við tölvu mest megnið af deginum. Jæja Annars gengur lífið bara sinn vanagang og ekkert mikið spennandi búið að gerast. Ég er búinn í speglunar aðgerðinni á hnénu á mér og ég held að hún hafi gengið bara alveg ágætlega. Ég er enn svolítið bæklaður í að ganga rétt aftur en það kemur fljótlega.Ég þarf að vera snöggur í gang og halda áfram að hreyfa mig, ég og Kristmann félagi minn erum svona að reyna að stefna að því að labba Laugarveginn seint í ágúst ef ég verð í lagi. En maður leyfir bara löppinni að ráða því.Annars erum við nú bara búin að vera að vinna bæði ég og Hlín á fullu. Hlín fer nú reyndar svo út til Mallorca þar næsta miðvikudag. Voðalega nice .Svo þarf maður bara svona fljótlega að fara að hugsa um næstu önn gera sig tilbúinn. En það er búið að vera ágætt að fá smá frí í sumar þó það sé alveg hellingur að gera. Þá er þetta bara aðeins öðruvísi álag.Jæja ekki meira í bili, Kveðja, Gunnar Lár.</description>
Reykjavíkurnætur
      <description>Mér fannst við hæfi að henda inn smá færslu hér til að láta vita að við værum nú ekki alveg hætt í blogginu góða.Ég var að enda við að endurnýja áskriftina að blogginu og því verðum við að reyna að vera dugleg á þessu ári og halda þessu svolítið uppfærðu annað slagið.Annars er bara allt gott að frétta af okkur skötuhjúum, við vorum bæði að koma frá útlandinu, ég frá Norge og Hlín frá Svíþjóð. Annars er það helsta sem er að frétta er að prófin okkar eru búin og okkur gekk báðum bara hreint ágætlega. Við náðum bæði öllum prófunum og erum bara nokkuð sátt með einkunnir okkar. Við erum sem sagt komin núna til Reykjavíkur í sumar, erum flutt inn á Hótel Pabba í Garðabænum. Skrýtið að koma í gamla herbergið sitt aftur svona. Allt nýmálað og orðið svaka flott.Annars er stefnan hjá okkur í sumar að reyna að afla einhverja seðla, það kostar víst að lifa á þessum "krepputímum" Hlín er með sína föstu vinnu á Landspítalanum og verður þar í sumar. Ásamt því að hún fékk smá hliðarvinnu við að hjálpa við rannsókn á vegum Háskóla Íslands, eitthvað í þá áttina.. Fer allt að skýrast. En það hljómar voðalega spennandi alla vega.Ég fékk vinnu hjá Vífilfelli hjá markaðsdeildinni. Ég er alveg gífurlega þakklátur fyrir það tækifæri (thanks bro) því þetta á eftir að nýtast mér í náminu alveg heilann helling. Svo er nú ekki verra að geta sett þetta á ferilskránna skooo . Ég mun sem sagt verða að aðstoða við ýmsar herferðir sem verða í sumar, ég er ekki alveg kominn inn í þetta hvernig málin verða en þetta hljómaði alla vega mjög spennandi það sem ég fékk að vita. Verður fjölbreytt og skemmtilegt sumar. Ég ætla svo  að koma með góða færslu um Noregsferðina hjá mér núna fljótlega ásamt nokkrum myndum.Hef þetta ekki lengra í bili, bara láta vita að við vorum bara geymd en ekki gleymd.. Kveðja, Gunni og Hlín.</description>
Snjórkorn falla, á allt og alla....
      <description>Jæja núna er snjórinn loksins kominn sem ég er búinn að vera bíða eftir. Við ætluðum að koma suður þessa helgi og ég ætlaði að skella mér í nokkrar vísindaferðir sem voru skipulagðar af skólanum í bænum, en svo varð ekkert úr ferðinni hjá okkur sökum þess við nenntum bara ekki að keyra í þessu veðri í marga tíma, og svo aftur í sunnudag.Það hefur alla vega kyngt niður snjó hér alveg síðan á fimmtudag og allt orðið vel pakkað af snjó. Ég er búinn að fíla mig í botn að keyra upp á alla hóla og hæðir hér en svo í dag kom smá skellur, var uppi á Vaðlaheiði með einum kunningja mínum úr skólanum og ég braut  boltana í einni drifloku hjá mér. Úps, keyrði í afturdrifinu aftur heim, eins brösulega og það gekk nú að þá komst ég heilu á höldnu til baka. Afi hennar Hlínar, Loftur var svo góðhjartaður að leyfa mér að setja Trölla inn í skúr til sín og kíkja á vandamálið, vonandi að ég leysi þetta nú eins fljótt og hægt er svo ég geti farið út að spóla aftur. Alveg ómögulegt að hafa jeppann inni í skúr meðan allur snjórinn er.Annars gengur lífið bara sinn vanagang og maður er kominn svona aðeins inn í "læru" rútínuna aftur. Fer að líða að verkefnum hjá mér og ætli maður þurfi ekki að fara að huga að þeim og byrja að skrifa niður hugmyndir að því sem maður ætlar að gera.Mig langaði líka að koma með eitthvað nýtt á bloggið og hef ég ákveðið að hverri færslu frá mér muni ljúka á því að ég kem með eitthvað "quote" frá annað hvort frægri manneskju eða hugsanlega úr bíómynd eða þvíumlíkt. Anyways, quote bloggsins núna er:"He has never been known to use a word that might send a reader to the dictionary."   -William Faulkner (about Ernest Hemingway)Kveðja, Snjókallarnir að norðan.</description>
Akureyrarvísur
      <description>Jæja, er ekki komið að hinu alls ekki algengu og hvað þá skipulögðu bloggfærslu uppfærslu hjá okkur skötuhjúunum.Það er allt gott að frétta héðan og allt sæmilega rólegt ennþá, skólinn er ekki farinn í gang að fullu svo maður bíður hvellsins bara með makindum (auðvitað dettur manni ekki í hug að læra fram í tímann, það er stranglega bannað með lögum... :) )Það er búið að vera í nógu að snúast hjá okkur að nýta tímann svona áður en álagið byrjar að dunda í litlu íbúðinni okkar, vorum að klára að setja upp skápinn sem við keyptum í Ikea og koma honum fyrir, sem var nú hægara sagt en gert og hvað þá að finna gólfpláss til að setja flykkið saman. En það hófst á endanum og á hún Hlín loksins almennilega hirslur undir öll fötin sín milljón.Veðrið er bara búið að vera ágætt miðað við þarna í rokrassgati hjá ykkur fyrir sunnan, þó mætti nú alveg eitthvað af þessum snjó sem virtist hafa villst af leið og endað á Suðurnesjunum alveg koma hingað. Trölli greyið (nei mér finnst engin kaldhæðni í að kalla jeppann minn trölla hehe ) er farið að langa í smá snjóhvell til að fara út að leika, fór í smá skottúr með Hauki félaga mínum hérna fyrir norðan eftir að við gerðum heiðarlega tilraun til að fara á skíði en það var svo hvasst að það var ekki hundi út sigandi þannig við ákvaðum bara að fara í smá bíltúr í staðinn. Stefnan er svo að koma suður næstu helgi, það er stór vísindaferð í skólanum sem ég hef nú samt á tilfinningunni að sé ekki mikill stemmari fyrir hérna. Við erum alla vega að hugsa um að skella okkur suður og jafnvel kíkja eitthvað með fólkinu sem fer.Ég keypti mér svo loksins kort í ræktinni í stöð sem heitir Átak hérna, virðist vera ágæt, svipar svolítið til "World Class" þemans sem ég er nú reyndar ekkert afskaplega hrifinn af en þetta verður nú sjálfsagt allt í góðu.Jæja nóg af bulli í dag, bloggið er víst ekki nógu góð afsökun svona lengi til þess að halda ekki áfram að hripa niður tölfræði .Kveðja.Gunni og Hlín.</description>
Ótitlað
      <description>jæja ákvað að koma með smá blogg, ég á reyndar að vera að fylgjast með í sálfræði tíma.. :Þ það er annars lítið að frétta af okkur, við erum bara á fullu í skólanum og læra læra læra. við erum búin að vera seinustu daga uppá bókasafni fram eftir kvöldi til að læra, því okkur gengur mun betur að læra þar heldur en heima. við stefnum að því að koma í heimsókn til Reykjavíkur fyrstu helgina í febrúar. Imba systir var að eiga lítinn strák og mig langar svo að fara að heimsækja hann, ég á reyndar að skila verkefni mánudaginn eftir þá helgi, en ég verð bara að vera dugleg og klára það í bílnum á leiðinni. Gunni náði upptökuprófunum sínum :) annars er ekkert meira að frétta.. skrifa meira seinna ;*kveðja. Hlín :)</description>
2008! 
      <description>jæja ég held að það sé komin tími til skrifa smá hérna, af tilefni þess að árið var að klárast. þetta ár var nú alveg rosalegt, miklar breytingar sem urðu á því.við útskrifuðumst bæði úr menntó í des 2006, þannig árið 2007 byrjaði með mikilli vinnu hjá okkur báðum, Hlín vann á krabbameinsdeildinni og meðgöngudeildinni í 150% starfi liggur við og Gunni vann í vélrás og í að gera upp bimmann þannig hann var í vinnu bara allan sólarhringinn :Psvo í apríl fórum við loksins í ferðina okkar til Evrópu :) það var alveg frábært og við tölum um þessa ferð á hverjum degi, hún var svo æðisleg :) og við erum auðvitað búin að ákveða að fara í einhverja svipaða ferð aftur :)            frá apríl til júni, lifðum við á hótelum og í bílnum. borðuðum góðan mat, skoðuðum nýja staði á hverjum degi, sötruðum bjór og versluðum að sjálfsögðu ;) og svo þegar við komum aftur þá byrjaði bara sama gamla farið aftur, vinna vinna vinna.. svo í ágúst fluttum við til akureyrar og byrjuðum í skólanum. það var rosaleg breyting að fara úr garðabænum hingað til akureyrar í okkar eigin íbúð, en það er alveg frábært að búa hérna og skólinn hefur gengið alveg rosalega vel hjá okkur báðum :) við höfum kynnst frábæru fólki og námið er mjög skemmtilegt.ágúst til desember fór ekki í annað en að læra læra læra, við gátum kíkt tvisvar til reykjavíkur á þessum tíma og þá var sko djammað ;) vonandi verður þetta ár jafn skemmtilegt, en aðeins rólegra. það er ýmislegt planað á þessu áriImba systir Hlínar á að eiga barn bara á hverri stundu og Hlín getur ekki beðið :)  var búin að vona að það kæmi í jólafríinu en gæinn ætlar eitthvað að láta bíða eftir sér!ásta og kata systur Hlínar fermast í mars, þannig við kíkjum í bæinn þá. þær eru líka að leika í leiksýningu í skólanum sínum þannig Hlín ætlar að fara sérferð til að horfa á þær, hún vill auðvitað ekki missa af leikkonunum sínum :) svo ætlar Gunni líklega að fara til Noregs að hitta mömmu sína og Hlín ætlar líklega til Bandaríkjanna með mömmu sinni og systrum og versla smá ;).við eigum 5 ára sambandsafmæli á árinu þannig það verður gert eitthvað extra rómó í tilefni þess :)en aðalplanið verður auðvitað að læra og ná árinu með stæl :)við viljum bara óska öllum gleðilegs árs og þökkum fyrir það liðna :) vonandi eigum við nú eftir að hitta fólkið okkar meira á þessu ári :)með bestu kveðjum akureyrarpakkið Gunni og Hlín ps. áramótaheitið okkar er að blogga meira :P þannig það koma nýjar fréttir af okkur þegar skólinn er byrjaður aftur :) </description>
Skólatíð
      <description>Helvíti erum við einhvað léleg við þetta blogg okkar.... Ætli ástæðan geti ekki verið sú að eftir erfiðan skóladag og þegar maður er búin að skrifa alltof mikið að þá einfaldlega nenni maður ekki að setja niður í rólegum að skrifa.  Það er nú samt allt í föstum skorðum hjá okkur. Skólinn er í fyrsta sæti og mestur tími fer í hann, ég (gunnar) er búinn að vera í fríi í þar seinustu viku, einhvers skonar verkefnavika sem er sett á til þess að nemendur geti einbeitt sér að klára þau gífurlegu verkefni sem eru sett fyrir.  Ég er núna einmitt að leggja lokahönd á rannsóknarritgerð um vistvæna eldsneytisgjafa sem henta vel íslands markaði, stefnir í að verða 20 bls ritgerð með myndum og öðru fíneríi.  Sömu sögu má nú eiginlega ekki segja um hana Hlín, það eru engin verkefni hjá henni nánast en allt morandi í prófum, hún er að meðal tali í einu prófi  í viku og hvert próf gildir ansi stórt. Enda er hún líka að mestu leyti  í símati.  Við kunnum ágætlega við okkur hérna svo sem, lífið er rólegt og stutt í allt og alla. Jeppinn er búinn að reynast vel og ágætis tilbreyting frá BMW skrímslinu sem unndi sér nú ekki vel hérna þar sem gatnakerfið er ansi götótt. Get nú samt ekki beðið eftir að það fari að snjóa aðeins hérna svo maður geti nú farið að svekkja þessa sveitadurga hérna á stóru jeppunum sínum.  Það er svona smá hugmynd hjá okkur að reyna jafnvel að fara í bæinn einhvern tíma í nóvember ef tími og fjárráð leyfa, annars komum við nú sjálfsagt ekkert fyrr en um jólin bara, klárum minnir mig skólan 13. des þannig við kæmum fljótlega eftir það, eigum nú samt pantaðan bústað með Kristmanni og Bergrúnu helgina eftir prófin í Svignarskarðinu, ætlum okkur að vera þar yfir helgina til að ná svona prófstressinu úr sér áður en maður kemur í vitleysuna í borginni. Verður ágætt að setjast niður og fá sér nokkra kalda og liggja í heita pottinum.  Við erum annars bara búin að vera sæmilega dugleg að elda okkur mat þó matseðillinn sé nú ekki sá fjölbreyttasti, peningar leyfa eiginlega ekkert annað en kjúkling, pasta og annars konar prumpfæði sem kostar litla peninga, ég persónulega er alla vega orðinn frekar hungraður í almennilegt kjöt og farinn að hlakka til þess að sprengja beltið yfir jólin.  Við erum loksins komin með okkar eigið internet hérna heima og er það alveg rosalegur munur. óttarlega fínt að geta legið upp í rúmi með tölvuna og lært.  Lengra verður þetta nú ekki í dag en ég ætla að reyna vera duglegri við þetta svona í framtíðinni, (segir maður það ekki alltaf og stendur svo aldrei við það... :) )  Kveðja,  Gunni og Hlín.  </description>
Ótitlað
      <description>Enn á lífi.Jæja mér datt í hug að hripa niður smá lífsummerki um okkur skötuhjúin.Lífið á Akureyri er ágætt, rólegt en ágætt. Við höfum bara verið að einbeita okkur að skólanum og að reyna að komast almennilega í gang. Ekkert smá viðbrigði að koma úr 2 mánaðar evróputúr og fara svo í að sitja á rassgatinu heilu og hálfu dagana að lesa...Annars erum við bara bæði að fíla HA alveg mjög vel, ég persónulega (gunnar) er ofsalega feginn að hafa ekki farið í Hí, eða HR, ég held ég hefði týnst meira þar og ekki náð að hafa eins mikið samband við kennara og nemendur eins og hér.Það er voðalega auðvelt að kynnast fólki hérna og maður þekkjir eiginlega orðið alls flesta svona með nafni. Mikið um félagslíf hérna og ég og hlín höfuð verið grimm í skólakvöldunum. Ágætt að kíkja í svona vísindaferðir og taka smá djamm með krökkunum og vera bara komin heim klukkan 2 og geta vaknað með höfuðið í lagi daginn eftir. Við vorum að hugsa um að reyna renna til Reykjavíkur í oktober þegar ég á afmæli. Taka eina helgi í bænum , þó svo mikill tími færi svo sem í að læra hugsa ég. En það má troða því inn á milli.Annars er íbúðin líka bara voðalega fín, vorum að fá nýja eldavél og örbylguofn. Það er verið að grafa fyrir netinu hjá okkur. Það voru bara tvær símalínur inn í allt húsið og er Síminn að grafa fyrir þessu núna. Þannig vonandi fáum við betri tengingu hérna inn fljótlega, erum að sníkja tengingu hjá fólkinu hér á móti. Borgum þeim bara hluta af tengingunni fyrir.Það er samt voðalega skrýtið að búa svona einn, við mættum nú alveg vera duglegri að taka til, en það virðist ekki vera efst á forgangslistanum í augnarblikinu, við tökum svona rispur bara. Ágætt að vera ekkert að stressa sig of mikið Ætla ekkert að hafa þetta lengra í bili, við látum heyra í okkur kannski áður en við komum í bæinn.Kveðja.Hlín og Gunni.</description>
Akureyri
      <description>jæja við ætlum að reyna að halda þessu bloggi gangandi þannig að fólkið heima geti fylgst með hvað við erum að bralla hérna.það hefur allt gengið vel hjá okkur, íbúðin er æði og skólinn líka. það er ekki mikið í gangi hjá okkur þessa dagana, nema þá að bara læra, erum alveg rosalega dugleg að lesa og mæta í tíma.  reyndar tókst henni Hlín snillingnum sjálfum að sofa yfir sig í dag, hún átti bara að mæta í einn tíma, og það frekar mikilvægan og hún bara svaf og svaf.. en það verður að hafa það. við höfum ekkert komist heim í bæinn ennþá en við stefnum að því að koma helgina sem Gunni á afmæli, sem er semsagt fyrsta helgin í október. Það er að byrja svolítil prófa-verkefna törn hjá Hlín núna næstu vikur þannig við ætlum bara að taka því rólega á meðan. jæja þetta er nóg í bili, endilega fylgist með og svo ætlum við að setja smá myndir frá Akureyri hérna inná síðuna seinna.kveðja Akureyrar-pakkið Hlín og Gunni </description>
Norge
      <description>Jaeja tha erum vid i Noregi nuna. Vid komum seinasta midvikudag hingad eftir erfida keyrslu fra svidtjodVid lentum hja mommu um fjogur leytid um nottina. Norskir vegir eru ekki their hradfornustu og thad sem their kalla hradbraut er engu skarra en thjodvegur eitt.Thegar vid komum fra skipinu lentum vid lika i sma aevintyri. Eg (myndasjuki apaheilinn) helt thad vaeri nu aldeilis snidug hugmynd ad smella einni mynd af skipinu adur en vid faerum. Thannig thegar vid komum utur skipinu beygi eg til vinstri og fer orlitid inn a hofnina, stekk ut smelli tveimur myndum og svo thegar eg er ad fara setjast aftur inn i bil kemur hvitur station bill upp ad mer. Tollurinn... great... Their heldu sem sagt ad eg vaeri ad losa mig vid eiturlyf thar sem eg kom ekki strax i tollskodun. En eg natturulega sa enga tollskodun og eg thad vaeri i lagi ad leggja bilnum tharna. En eftir nanari skodun a okkur og athugun a vegabrefum tha for thetta nu allt vel... En thad var nu samt ekki alveg buid.Vid vorum buin ad keyra i svona 5 minutur thegar BAMM! rautt flass og enginn sa neitt.. flott tekinn af hradamyndavel.. Eg var sem sagt a svona 69 km hrada a 70 svaedi thegar akkurat skiptist yfir a 60 svaedi og myndavelin kom. Ekkert skilti eda neitt fyrr en vid hlidina a myndavelinni.. Thannig eg byst nu vid ad fa einhverja sma sekt heim ef their finna ut numerid hja mer. Vonum ekki...En ferdin til mommu gekk annars bara agaetlega ad odru leyti (vid reyndar keyrdum naestum thvi a einhvad helvitis nagdyr sem datt i hug ad thad vaeri god hugmynd ad rolta yfir gotuna)Vid hofum annars bara verid ad taka tvi rolega og njota thess ad vera til. Buin ad skoda adeins i kring her og borga godann mat. Vid leggjum af stad til Bergen klukkan 5 i nott og verdum ad vera maett klukkan 16.00 i skipid i check in. Skipid fer svo kl. 19.00 og kemur heim kl 09.00 a fimmtudaginn.Vonandi lata tollararnir heima okkur i fridi, tho vid seum ekki med neitt tollskylt thannig lagad erum vid bara med svo mikid dot med okkur ad thad halfa vaeri nog.Skrytid ad hugsa til thess ad ferdin se ad verda buin.. Skrytin tilfinning ad vera fara heim aftur, ekki bua bara i ferdatoskum a hotelum og thurfa alltaf ad drosla ollu upp a hotel hverja einustu nott. En thetta er engu ad sidur buin ad vera alveg aedisleg ferd sem hefur gefid okkur thad mikla reynslu sem mannig gaeti aldrei dottid i hug.Tho thetta se svona eiginlega seinasta bloggid i ferdinni tha latum vid nu heyra i okkur thegar vid erum lent heim. Vonandi stendur bimmi gamli sig vel a leidinni a morgun og kemur okkur timanlega i skipid. Kaer kvedja, Hlin og Gunni.</description>
Danmark og Sverige
      <description>Jaeja nuna erum vid komin til Svidthjodar. Vid sem sagt keyrdum i fyrradag fra Frankfurt til hennar Evu Bjarkar i Sönderborg i Danmörku. Rosalega gaman ad hitta islendinga og var mikid bladrad um kvoldid yfir bjor og hvitvini. Voda fint. Eg stoppadi hja "verkstaedinu minu" , strakunum i schmiedmann og nadi i restina af dotinu minu (get loksins trodid vokvastyri i bilinn). Ferdin fra Frankfurt var rosalega long. Vid vorum i um thad bil 8 tima a keyrslu og thad var gjorsamlega steikjandi hiti allan timann. En thad var thess virdi utaf vid gatum eytt tha heilum degi i Frankfurt i stadinn sem var vodalega fint.I gaer keyrdum vid til Ingibjargar , systur hennar hlinar, hun byr rett fyrir utan koben og vorum thar i kvoldmat og ad kikja a nyja husid theirra. Svo eftir thad heldum vid yfir til Sverige og til pabba hlinar i Malmö. Vorum stoppud i tollinum en audvitad erum vid svo saet og aedisleg ad their voru ekkert ad rifast i okkur tho billinn vaeri vel hladinn.Vid geymdum rosalega mikid af doti hja henni Evu i Danmörku (takk enn og aftur) og ad koma thvi drasli inn i bilinn var ekkert grin. Tok klukkutima ad pakka i bilinn og eg skil ekki hvernig thad komst svona mikid inn i hann.Thad sem er inn i bil,,  i grofri talningu er:6X ferdatoskur (ekki litlar)2X bakpokar1X kaelibox2X silsar utan a bilinn (um thad bil 1.5 meter a lengd)1X spoiler aftan a bilinn1X svefnpoki1X motorhjolahjalmur1X kassi fullur af varahlutum1X kassi fullur af verkfaerum , asamt startkoplum, thvottafotu og ymsu odruPlus allur maturinn okkar og allt drasli sem er utum allt. Vid thurftum svo ad taka allt draslid utur bilnum i gaerkveldi og setja inn Magnusar. Litlu systur hennar Hlinar flugu svo hingad i dag og eyddum vid deginum i baenum ad kikja i budir og slappa af. A morgun er svo planid ad dutla okkur einhvad fram eftir degi og svo eigum vid pantadann tima i bát fra Stromstad til Sandefjord i Noregi.Vid aetlum sem sagt ad fara fra Malmö til Arendal thar sem mamma byr.. Aetludum fyrst ad keyra en thetta er yfir tiu tima akstur. Fundum tha bat sem gerir okkur kleift ad sleppa vid Oslo og fjordinn thar thannig baturinn tekur um 2 og halfann tima og eg nae ad leggja mig tha a medan. Baturinn fer um half ellefu um kvoldid og er kominn til Noregs um 1 leytid. Thurfum ad leggja af stad til Stromstad um svona 4 leytid a morgun. Og eg byst vid ad vera heima hja mommu um svona 3 eda 4 i nott ef thad verda einhverjar tafir. En vid naum tha einum aukadegi.Svo fram Arendal til Bergen thar sem norraena fer eru svona einhverjir 7 til 8 timar i akstri thannig thetta verda erfidir dagar i keyrslu , serstaklega thar sem norskir, danskir og saenskir vegir eru alveg skelfilegir.  Reynum ad setja inn kannski einhverjar myndir inn i kvold, annars bara thegar vid komum til mommu.Kaer kvedja!</description>
Deutschland UBER ALLES!
      <description>Jæja þá eru við LOKSINS komin til Þýskalands og þvílíkur léttir.Við erum núna í litlum bæ sem er rétt hjá Heidelberg, man ekki einu sinni hvað hann heitir. Við ætlum að kíkja á tæknisafnið í Sinsheim á morgun og vorum að klára að skoða Burg Eltz kastalann í Móseldalnum í dag.Það sem við erum búin að bralla upp á síðkastið er að skoða Bodensee, Svarta skóg og Rínardalinn.Við fórum frá Salzburg til Konstanz í Þýskalandi og lentum á rosa fínni gistingu þar. Við tókum ferju yfir Bodensee sem var rosalega gaman og sá maður þá virkilega hvað þetta er stórt. Við skoðunum auðvitað Mainau og eyddum góðum tíma þar, við tókum sameiginlega ákvörðun að taka því bara rólega núna seinustu dagana þar sem við erum bæði orðin ansi þreytt. Við röltuðum bara um Mainau og nutum þess að vera til.Svo eftir það keyrðum við í gegnum Svarta skóg sem var algerlega frábært. Ég fór og skoðaði hæsta foss Þýskalands og það var nú meira pissið, þetta var samt voðalega fyndið, við vorum að keyra niður einhvern veg og ég sé þetta skilti með þennan foss og ákveð að kíkja á þetta, Hlín vildi bara bíða í bílnum enda ekki mikil fossaáhugamanneskja þannig ég ákveð að hlaupa og skoða þetta, vildi ekki betur til en ég byrja að hlaupa niður brekkuna að fossinum að hún er svo brött og ég svo dofinn í fótunum eftir allann aksturinn að ég enda á því að hlaupa niður alla helvítis brekkuna sem var svona 700 m og þverbrött, fossinn var ekki meiri en það að ég stoppaði í tvær mínutur og smellti nokkrum myndum... En uppferðin reyndist nú heldur erfiðari en niðurferðin og þegar ég loksins snéri til baka var ég nær dauða en lífi eftir að hafa hlaupið upp fjandans brekkuna aftur.Svarti skógur var annars bara voðalega fínn, við tókum okkur bara góðan tíma og héldum svo til Stuttgart þar sem beið okkar fín IBIS hótel gisting. Í stuttgart skoðunum við meðal annars Porsche og Mercedes safnið. Og verslunarvillingurinn fékk auðvitað sitt og komst í búðir  Það var voðalega gaman á Mercedes safninu , þetta er glænýtt safn sem var opnað árið 2006 og er þvííílíkt flott, 8 hæðir, maður byrjar efst og vinnur sig niður. Meira segja Hlín skemmti sér konunglega. Ég fór einmitt á Mercedes safnið þegar ég var með mömmu og pabba í Þýskalandi fyrir um tíu árum, á mynd af mér með 300 SL Benz sem ég líka tók mynd af mér aftur með núna. Verður gaman að setja það í ramma, búinn að stækka aðeins...  Er á hinni myndinni glaðbrosandi og vantar í mig helminginn af tönnunum.Þegar við vorum búin í Stuttgart þá ætluðum við að fara á akstursbraut sem er kölluð Nurburgring en helvítið var lokað útaf tónleikum sem eru haldnir þar núna (Rock Am Ring) þannig það fór í vaskinn, var búinn að múta hlín með fullt af búðum til að fá að fara þangað...  En Hlín var nú bara sátt með að fá einn aukadag í búðum. Við fórum sem sagt til Koblenz og vorum þar í tvo daga, voðalega fínt að vera þar og hótelið sem við fórum á var í miðjum bænum. Fórum á skemmtilegann kínverskann stað sem hét Ding Dong (byrjar vel) og fengum okkur Take Away af fullt af drasli sem ég kann ekki einu sinni framburðinn á og fengum bæði illt í magann og dótið skilaði sér ansi fljótt í klósettið.. Melt eða ekki.Eyddum svo þessum dögum í að skoða Rínardalinn og fórum að skoða meðal annars kastala í Móseldalnum sem heitir Burg Eltz. Svo á leiðinni hingað í þennan bæ sem ég man ekki heitið á gerðist svolítið skringilegt, við vorum að keyra niður eftir Rín þegar ég fæ símhringingu, þetta var þá vinafólk mín og Hlínar sem heita Jónas og Harpa og eru á "interrail" ferðalagi um Evrópu, við höfum verið í smá sambandi við þau og vorum svona búin að tala um jafnvel að hittast einhvers staðar ef við værum á svipuðum slóðum. En okkur óraði aldrei fyrir að hitta þau í Rínardalnum og sérstaklega ekki að þau hefði séð okkur bara á runtinum.Þannig við kjöftuðum við þau í dágóðan tíma enda langt síðan við töluðum við einhvern annan en hvort annað og hvað þá einhvern sem talar íslensku... Gaman að bera ferðirnar okkar saman, við á bíl og þau með bakpoka á lestaferðalagi. Skemmtilega ólíkar ferðir. Verðum að prufa þetta einhvern daginn.Við erum sem sagt núna bara upp á hóteli og erum að panta okkur gistingu og setja inn myndir á netið. Erum að hugsa um að fara til Frankfurt á morgun og ætlum að kíkja stutt við á tæknisafninu í Sinsheim. Það fer annars að líða að lokum á ferðinni og maður veit eiginlega ekki hvort maður sé spenntur eða ekki, auðvitað verður gaman að fá einhvað gott að borða og þurfa ekki að búa í ferðatösku en maður á samt eftir að sakna þess um leið og maður er kominn heim. Þannig er það bara alltaf.Við höfum samt komist að því að Þýskaland er lang besta landið af þeim öllum sem við höfum verið í, maturinn er betri, vegirnir eru betri, bjórinn er betri, það er ódýrara að gista, bensínið er ódýrara. Þannig við erum nokkuð viss um að við komum hingað fyrr en síðar að skoða betur.Ég ætla að sjá hvað ég nenni að setja margar myndir inn í kvöld, þetta er svo helvíti tímafrekt þar sem við erum með svo mikinn bunka af myndum og það þarf að laga sumar örlítið.Kær kveðjaGunni og Hlín</description>
Pompei - Perugia - Feneyjar - Salzburg
      <description>Jæja núna er kominn tími til að láta heyra aðeins í okkur eftir að hafa verið netlaus í nokkra daga.Þegar við vorum búin með Róm þá skelltum við okkur yfir einn dag niður til Pompei. Það tók um þrjá tíma að keyra þangað en það var alveg þess virði. Borgin var mikið stærri heldur en við héldum og göturnar þar voru auðvitað rosalega erfiðar í göngu , sérstaklega fyrir mig (Gunnar) útaf ökklanum á mér. En það sem kom okkur á óvart var hversu rosalega flott allar byggingarnar hafa verið þarna. Og einnig hvað þetta var heilt. Ótrúlegt að borg geti bara horfið undir eldgos og fundist svona mikið seinna.Við kláruðum Pompei um kvöldmatarleytið og áttum gistingu í Perugia. Þann dag var sem sagt keyrt mikið, keyrðum þrjá tíma til Pompei, svo eiginlega bara sömu leið til baka aftur í þrjá tíma og svo til Pompei. Við gistum á Holiday Inn gistingu í Perugia og það var niiiiiice!, lang bestu rúm sem við höfum fengið og loksins náði maður almennilegum svefn. Svo var stefnan tekin á feneyjar, með smá stoppi í Ferrari safninu í Marinello... stoppuðum ekkert voðalega lengi þar, þurftum að keyra mikið og svo var hinn helmingurinn ekkert voðalega hrifinn af öllu þessu málmdrasli þarna ... Þennan dag lentum við samt í heiftarlegri umferðarteppu ,,, skildum fyrst ekkert hvað var í gangi og allir stopp, ég fór út og teigði úr mér í svona 15 mínutur og svo sátum við bara og hvíldum okkur inn í bíl. Svo eftir dágóða stund byrjaði allt að færast og svo svona tveimur kílómetrum seinna þá sáum við það.... Það hafði BMW bíll keyrt beint aftan á vöruflutningabíl og bíllinn var gjörsamlega í köku,,,, húddið og mótorinn höfðu kramist undir stönginni sem eru aftan á trukkunum og af því litla sem ég kunni nú við að horfa á þetta þá sýndist mér nú ökumaðurinn alla vega ekki hafa sloppið ómeiddur úr þessu. En vonandi fór þetta nú ekki eins illa og þetta leit út.. Maður fann greinilegan mun á umferðinni eftir þetta, hún var töluvert rólegri og virtust flestir vera svona hálf slegnir..Svo þegar við komum til Malcontenta, sem er lítill bær (hverfi) fyrir utan Feneyjar, höfðum ekki efni á því að gista í Feneyjum, enda kostar það líka svona 300-4000 evrur nóttin þannig það var ekki alveg option.. Plús það eru engar götur,,, :)Feneyjar voru samt ekkert eins og við bjuggumst við, borgin sjálf er tiltörulegra hrein, miðað við það sem maður hafði heyrt. Það er samt ekkert voðalega mikið að skoða þar, við eiginlega eyddum bara deginum í að rölta um borgina og neita að kaupa töskur og lítil asnaleg gúmmídýr af helvítis farandsölunum. Við reyndum aðeins að kíkja í búðir þar, gunna vantaði nærbuxur en einu merkin sem voru þar að einhverju viti voru Prada, Gucci, Valentino og einhvað annað kjaftæði sem enginn vill borga fyrir... Gunni kíkti í eina kirkju þar sem það mátti ekki fara með bakpoka þar inn, Hlín var svo góð að láta múta sér með ís svo ég gæti stokkið inn í tíu mínutur, hún var voðalega ánægð með það.. Enda enginn smáís.. Besti ís í heimi.Við vorum að pæla í að skella okkur á gondóla, en við ákváðum bara að horfa á hina bjánana og taka myndir af þeim. Um kvöldmatarleytið ákváðum við nú að fara bara að skella okkur upp á hótel, þegar við vorum komin svona tíu mínutur af stað í umferðarteppuna með strætónunum þá byrjaði að hellirigna.. Sluppum ansi vel þar.Deginum í dag eyddum við svo bara í að keyra til Salzburg, við vorum að pæla í að fara fyrst til Sviss og koma við í bænum Zermatt, sem er þar sem ég hef farið svolítið á skíði gegnum árin. En það tók bara of langan tíma samkvæmt gps kellingunni. Við gistum sem sagt hérna í nótt og höldum svo til sviss á morgun, ætlum að taka daginn í að rúnta framhjá innsbruck og í gegnum alpana, planið er svo að enda hjá Bodensee í þýskalandi og skoða Svarta skóg.. Ég hef komið þangað mjög oft, en eins og gengur og gerist er alzheimerinn alveg að fara með mann þannig ég man ekki einu sinni hvað ég gerði í gær (tek alla ferðina upp á diktafón svo ég geti bloggað.. erfitt líf )Eitt sem við gleymdum að segja frá er seinasta daginn sem við vorum í Róm, þá vorum við að skoða hringleikahúsið og þegar við vorum að koma þangað út kemur einhver stelpuskjáta upp að mér og spyr hvort ég vilji ekki skrifa undir einhvers konar undirskriftarlista fyrir fátæk börn. Jú jú svo sem,,, ok, skrifaði einhvað bull nafn og kjaftæðisland en svo heimtaði hún pening frá mér í kjölfarið. Ss, hún biður mig um að skrifa undir þetta skjal og ég á að gefa henni pening fyrir fátæk börn,,, hélt nú ekki.. Ég var nú reyndar ekki með neinn pening í lausu á mér þannig ég laug nú ekkert með það, en hún brást öll sú versta við og gretti sig ógurlega og sagði á sinni bjöguðu ítölsk´-ættuðu ensku "fuck you bitch".. Já takk fyrir það kærlega, og vonandi svelta börnin þín ekki sem þú virðist hafa svona miklar áhyggjur af.. Býst nú ekki við að þessi peningur sem ég átti að gefa henni hafi verið handa þeim.. Það samt sem svona fólk gerir sér ekki grein fyrir er að það veit ekkert við hvern það er að steita hnefann í, hvað veit hún nema ég hafi gleymt að taka lyfin mín í morgun og hefði gefinn henni einn góðann á hann.. En þar sem ég er svo góðhjartaður þá ullaði ég bara á hana og gekk mína leið..Endilega ef þið hafið einhverja staði að skoða annað hvort í sviss eða í þýskalandi þá endilega skellið þeim á netið, við erum nú reyndar að verða uppiskroppa með tíma en það má alltaf bæta einhverju inn í þessa lauslegu "dagskrá okkar" ef svo má kalla.Sé til hvort ég nenni að setja inn myndir í kvöld, þetta er svoddann flóð sem við eigum af þessu myndadóti.Kveðja frá Hlín og Gunna :)</description>
Ítalía - Róm
      <description>Jæja þá erum við í Róm.Við erum búin að skoða Písa og Flórens seinustu daga. Við keyrðum frá Tórinó til Písa og kíktum auðvitað á skakka turninn og tókum fullt af myndum. Við eyddum ekki miklum tíma þar og svo í enda dags þá keyrðum við til Flórens, við vorum í tvo daga þar en eiginlega einn bara í að skoða.Við fórum auðvitað að sjá "dómuna" í Flórens, Uffizi safnið og margt fleira. Gleymdum að segja frá því að við lentum í því í Tóríno að það var lagt við hliðina á okkur í bílastæðinu okkar sem gerði það að verkum að við komumst ekki út. Einhver fábjáni á jeppa sem setti bara hazardinn á við hliðina á okkur og var í svona 2 tíma... Helvítis ítalir En já, við erum sem sagt í Róm núna, við erum á gistihúsi hér sem er svona ágætlega huggulegt, loftkælingin mætti vera betri og maurarnir sem létu sjá sig í gær koma vonandi ekkert í dag... En að öðru leyti ágætis gisting. Dagurinn í dag var tekinn snemma, við tókum lestina niður að safninu í Vatikaninu, erum svolítið fyrir utan miðborgina þannig þetta hefði orðið ansi langur göngutúr.Röðin í safnið var alger djók og tók vel yfir klukkutíma, sem betur fer eftir að við náðum loksins inn þá byrjaði að rigna, svo þegar við kláruðum safnið þá hætti rigningin, mér heyrist hún samt vera byrjuð aftur núna og með góðum eldingum líka.Vatikan safnið var rosalega stórt og mikið. Það var eiginlega of mikið af fólki þarna inni og í Sixtínsku Kappellunni var þetta nátturulega bara djók. Það voru svona 300 manns þarna inni og allir stóðu bara og horfðu upp í loftið (en ekki hvert) og svo var vörður sem sussaði á mannskapinn þegar hann var farinn að tala of mikið (við hverju búast þeir þegar þeir hafa svona marga þarna inni)Það er eitt sem hefur angrað okkur rosalega í þessum safnferðum okkar, ekki að við séum neinir rasistar á neinn hátt en þá eru þessi austurlandabúar alveg gjörsamlega óþolandi í umgengni... Það er ekki nóg með að auðvitað ferðast þeir allir í hópum, 50 MIN! , þannig ef einn þeirra treðst fyrir framan þig þá koma allir hinir dvergarnir hlaupandi og hrindandi með. Svo er þetta líka bara svo dónalegt fólk , það treðst bara fyrir mann og ýtir og allar græjur til þess að vera 5 mínutum á undan næsta manni. Svo eru nátturulega myndavélarnar.... það verður að taka mynd af öllu, helst átta sinnum, og mynd af öllu með öllum, helst átta sinnum... Sem betur fer er bannað að lemja minnimáttar.. Ég er sjálfsagt ekki sá eini sem hef lent í þessu.Svo er líka alveg æðislegt að sjá frumleikann í sölumönnunum hérna, í röðinni á safnið í dag þá var frekar heitt, þannig þá voru þeir (flestir litaðir (tyrkir sýndist mér) að selja vatn, kalt. Ok, frekar sniðugt.. Svo þegar byrjaði að rigna,,, voru þeir þá ekki mættir með regnhlífarnar.. hehe þetta var alveg kostulegt að sjá þá þarna..Við vorum ekkert að flýta okkur á safninu, það var nátturulega rigning þannig við skoðunum svona það flesta og tókum myndir þar sem það mátti.Svo í St. Péturskirkju gekk þetta nú betur, þar var frítt inn og flæðið mikið betra, enda stærra svæði. Kirkjan er vægast sagt frábær í útliti. Við vorum alveg agndofa yfir stærðinni á þessu. Svolítið magnað líka að fá að sjá kisturnar hjá fyrrverandi páfum, svo sem eins og jóhannesi páli nr 2. Við fórum svo upp í "Kúpulinn" sem var ekki nema 500 þrep fyrir þá sem kusu að kaupa miða í stiga, ekki lyftu (við tökum ekki lyftur í þessari ferð takk fyrir) og þá tók svona temmilega á.  Gaman að sjá innan í kirkjuna svona hátt uppi og inn í dómuna. Svo fórum við út og fengum flott útsýni yfir bæinn.Róm er mikið stærri heldur en þær borgir sem við höfum verið að skoða, eða þeas allt mikið dreifðara, þannig í dag tókum við bara þetta tvennt, svona það helsta. Gengum reyndar svo mikið á endanum að við enduðum hjá hringleikahúsinu, en við vorum svo þreytt að við tókum bara lestina heim og sjáum það á morgun.Planið er svo að klára róm á morgun og fara svo til Pompei daginn eftir, neðar förum við ekki. Svo keyrum við til Feneyja og stoppum þar í einn dag. Meira er ekki ákveðið alveg með föstu. En eitt er víst að tíminn er að hlaupa frá okkur. Þótt ótrúlegt megi virðast.En manni fer nú að hlakka samt til að geta tekið því rólega, við ætlum að reyna liggja bara í sólbaði hjá mömmu í Noregi, við erum orðin ansi lúin, Hlín greyið sofnaði klukkan 9 í kvöld meðan ég hef verið að hamast við að setja inn myndir (þetta tekur engann smá tíma)Svo fer nú að líða að því að við förum að fá að vita hvort við komumst inn í háskólana. Það ætti að verða forvitnilegt.Bless í bili :) Reynum kannski að setja inn myndir frá ítalíu á morgun.Kveðja, Gunni og Hlín Svefnstrumpur.</description>
Dijon - Avignon - Millau - Avignon- Arles - Marseilles - Cannes - Monaco - Torino
      <description>Jæja núna er kominn tími fyrir smá skriffinnsku hérna.Síðustu dagar hjá okkur hafa ekki verið neitt eðlilega stífir og mikið að skoða. Við höfum ekki verið í miklu internet sambandi og eingöngu farið á netcafé til þess að panta gistingar. Eftir að við vorum í París ákváðum við að keyra til Dijon, sem verður að segjast kom okkur virkilega á óvart. Við ætluðum bara að vera í eina nótt en ákvaðum að eyða tveimur dögum þar sem við fundum svo skemmtilegann kastala til þess að skoða. Chateu De Bussi Rabutin. Það var rosalega gaman að sjá þann kastala þar sem hann hafði ekki verið eins endursmíðaður eins og aðrir sem ég hef til dæmis séð í þýskalandi. Leiðin þangað var líka alveg æðisleg, lengst upp í sveit og þvílikt krappir og erfiðir vegir sem bmwinum hefur nú ekki fundist leiðinlegt að negla. Þegar við vorum búin með Dijon fórum við að ákveða hvert við ætluðum næst og fórum við svona að hugsa að því að halda suður á við. Við ákvaðum svo bara eiginlega uppúr þurru að fara að skoða Viaduct Millau brúnna sem trónir yfir smábænum Millau rétt hjá Arles í Frakklandi. Brúin var smiðuð árið 2004 og er ein hæst brú í Frakklandi (ef ekki sú hæsta) Við sem sagt gistum þar og skoðuðum brúnna sem var rosalega gaman.Eftir þar fórum við til Avignon og skoðuðm hana mjög vel. Höll páfana eins og það hét var rosalega áhugaverð og landslagið er líka bara frábært þar. Við renndum einnig til Arles um kvöldið og skoðunum hringleikahúsið örlítið.Svo í dag, þá fórum við frá Avignon, keyrðum niður til Marseilles og þræddum strandlengjuna alveg eins og hún leggur sig. Þetta tók svakalegann tíma og við vorum að koma bara núna upp á hótel í Torino á Ítalíu, þannig keyrslan í dag er búin að vera 13 klukkutímar takk fyrir. Við byrjuðum á Marseilles sem við renndum bara snöggt í gegn, svo tóku við þessir æðislegu smábæir við ströndina við vorum eiginlega bara bæði agndofa yfir fegurðinni þarna. Vegirnir voru frábært, háar brekkur, erfiðar beygjur og lítil umferð. Þegar við fórum svo að koma nær Cannes fórum við nú að finna örlítið fyrir kvikmyndahátiðinni sem er þar núna. Umferðin þyngdist örlítið og við ákvaðum að stoppa ekkert lengi þar. Við rétt keyrðum eftir ströndinni, tókum myndir og slöppuðum aðeins af. Svo áður en við komum til Monaco þá fundum lítinn Pizza stað sem okkur ótrúlega en satt tókst að biðja um pizzu, biðja þau um að hlaða myndavélina okkar og að fá að nota klósettið. Maður þarf ekkert að læra tungumálið ef maður er bara nógu góður í puttamálunum. Þegar við vorum búin með Cannes var klukkan orðin helvíti margt, og við vorum eiginlega jafnvel á því að sleppa Monaco, en einhvern veginn villtumst við þarna niður og anskotinn hafi það ég ætlaði aldrei að komast þaðan í burtu, loksins þegar öll þolinmæði var þrotin og gps apparatið var að segja mér að gera vinstri beygju beint inn í klettinn við ströndina að þá keyrði ég bara einhvað, endaði á grand prix brautinni þar og brenndi þaðan í burtu. En við fengum nú samt að sjá svona það mesta sem var þar. Rosalega mikið af flottum bílum þarna og fólk greinilega á einhvað af seðlum.Við verðum samt að játa að við hlupum svolítið á okkur að halda að við gætum rennt yfir þetta allt á einum degi (já eða ég...) En við vitum alla vega að við viljum skoða þetta betur, en ég held að ef maður ætli að vera þarna einhvað þá verður maður að vera í rétta gírnum. Við erum meira í svona menningarferð. Það væri ábyggilega voðalega gaman að fara á ríveruna í svona 2 vikur og sóla sig og skoða svæðið þarna þar sem þetta er ofboðslega fallegt þarna ekkert svo dýrt ef maður er bara nógu klár (internet-árgangurinn)Við erum sem sagt núna í Torino á hóteli sem átti að kosta 250 evrur nóttin en var magically lækkað niður í 50 (eflaust plat á heimasíðunni til þess að allir haldi að þeir séu að fá ****** hótel.Þetta var samt allt of langur akstur á einum degi, við lentum líka í þessu fína þrumuveðri í Ítalíu og smá rigningu.Við sáum á skiltum í dag að það var 33+ hiti, gæti hafa verið í sól en engu að síður þá var heiftarlega heitt og ég held að ég sé búinn að drekka 4 lítra af vatni í dag sem fóru allir jafnfljótann út um svitaholurnar.Okkur langaði annars bara að láta vita að við erum ekki búin að gleyma ykkur og við reynum að verða svolítð dugleg núna í ítalíu að blogga. Við reynum líka að nota símann sem minnst, þeir eru orðnir frekar háir blessaðir símareikningarnir.. Sérstaklega eftir allar samræðurnar við gluggakompaníið fyrir rúðuna í bílinn.Eitt sem maður hefur samt tekið eftir með þessari borgir hérna í frakklandi er að það eru allir bara útum allt, mótorhjólin bera enga virðingu fyrir bílunum , og enginn ber virðiningu fyrir gangandi vegfarendum, ef maður hleypir fólki yfir á gangbraut þá liggur við að maður fái bara rósir fyrir. og það eru allir bílarnir hérna beyglaðir eða skemmdir þannig ég hef þurft að velja mér stæði frekar varlega sem eru nú af skornum skammti.EIgum við ekki bara að segja þetta gott í bili, við hlökkum svo bara til að heyra í ykkur og það fer nú að styttast í endalokin á þessu. Kær kveðja.Ferðalangarnir.</description>
Sacré Bleu! - Frakkland - París
      <description>Jæja núna erum við í borg ástarinnar París.Við erum búin að vera hérna í þrjá daga og búin að skoða rosalega mikið. Við lögðum bilnum bara í bílastæðahús og erum búin að labba borgina þvert og kruss, búin að taka lestina einu sinni og þá vorum við líka að fara um 6 km.París er samt svolítið spes borg, hún er rosalega fallegt og allt það en hún er samt sem áður líka frekar leiðingjörn. Menningin hér er svo allt öðru vísi heldur en heima, það er erfitt að finna pub hérna sem hægt er að setjast inn fá sér bjór og halda svo áfram, hérna þarf maður alltaf að fá borð, sér þjón og helst að panta einhvað ógurlega dýrt. Hlín líka vill koma því fram að það er ekki gaman að versla hérna nema maður eigi fullt af peningum og sé merkjafrík.. En svona í alvörunni að þá er þetta bara búið að vera voðalega gott. Við erum búin að skoða Sigurbogann, Eiffelturninn(gegngum alla leið upp, sem var hægt að ganga þ.e.a.s) Louvre safnið, sem er svolítið stór biti í einu ef þú ert ekki með brennandi listaáhuga, en voðalega gaman að sjá samt Monu Lisu og Venus með berum augum. Þó okkur hafi engan vegin fundist þau fallegustu verkin þarna.Við fórum auðvitað líka í Notre Dam kirkuna sem okkur fannst rosalega gaman því það var messa þar, virkilega flott að labba þar upp og skoða útsýnið.París er því bara búin að vera voðalega fín, erum orðin svolítið þreytt reyndar bæði líkamlega og andlega, búin að ferðast mikið og orðin svolítið þreytt.En á morgun förum við til Dijon, erum að fikra okkur betur suður á bóginn. Ætlum að prufa að renna til Cannes og kíkja á þessa kvikmyndahátið, reikna með ekki með gistinu þar sem það er nú líklega ekki hægt að finna hana þar.En já, ég get ekki skrifað meira þar sem ég þurfti að borga 5 evrur fyrir 45 mínutur...! Pósta myndum fljótlega, búinn að taka fullt af myndum héðanKær kveðja.!Hlín og Gunni</description>
Belgia - Brussel
      <description>Heil og SælNúna erum við stödd í Brussel í Belgíu. Nýja rúðan mín verður sett í á morgun hér þannig dagurinn í dag fór bara svona að mestu í skoðunarferðir. Brussel kom okkur alveg skemmtilega á óvart, rosalegt mannlífið í gamla bænum og margt skemmtilegt að skoða. Rosalegur ágangur samt frá mönnum frá veitingastöðum sem voru að reyna lokka mann inn á sína staði. Einn gerðist svo frakkur að bjóða mér fríann mat,,, langaði nú að spyrja hann hvað bjórinn kostaði þá.. hehe.Ég fékk að leggja bílnum í bílastæðahús á hóteli hérna í nágreninu sem heitir 4 points, konan í móttökunni benti mér á það þar sem bíllinn er auðvitað bara með plexiglers hliðarrúðu að þá tók ég engann séns á því.Við fengum líka helvíti fína rigningu hérna áðan, við vorum að labba heim úr bænum þegar við byrjun að heyra þrumur og eldingar, svo bara eins og fingri hafi verið smellt þá var eins og það hafi verið sturtað úr fötu yfir bæinn í svona 20 mínutur, það fór allt á flot, flæddi uppúr holræsum, og allar götur urðu bara að litlum lækjum. Hlupum inn í svona ATM skýli og héngum þar í smá stund, regnhlífarnar okkar virkuðu bara ekkert í þessu veðri. En þetta var ansi fróðlegt þó maður hafi svoleiðis rennblotnað.Það var mjög gott að komast í smá sturtu hérna þar sem maður hafði engann tíma til að sturta sig í Amsterdam, plús að það var ekkert í boði held ég.Ég er búinn að setja inn fullt af myndum núna inn í kvöld. Þetta blogg er orðið bara sæmilegasta vinna. En það er rosalega gaman að þið getið fylgst með okkur, ég ætla reyna klára setja inn smá lýsingar á myndirnar líka svo þið getið fylgst með því hvað við erum að skoða.Planið fyrir vikuna er að fá rúðuna klukkan eitt á morgun og byrja svo að keyra áleiðis til Frakklands , Paris.Við eigum gistingu pantaða þar á budget hóteli í fjóra daga. Það var ekkert voðalega ódýrt, um 3000 kall nóttin á manninn en engu að síður ágætt miðað við hvað við verðum lengi, það var hvergi laust svona lengi þessa daga.Við höfuð svo aðeins verið að skoða hvað kostar að fara í Disneyland, við erum eiginlega alveg á báðum áttum, þetta er voðalega dýrt. Við sjáum til hvað við eyðum í  París og ákveðum okkur svo hvort við kíkjum.Við ætlum svo að keyra niður frakkland og að strandlengjunni, okkur langar að rekja hana aðeins en við ætlum að reyna að forðast að gista þar. Verðum að kíkja í Monaco í smá stund.Langaði bara að henda inn smá færslu og minna á myndirnar. Ég veit að þetta er mikið og kannski margt af því sama, en ég nenni ekki að fara betur yfir þetta og vinna þær einhvað til. Þetta er bara of mikið magn til þess plús ég er í fríi.. Btw, fundum hótel hérna sem heitir "Hótel Alma" .. ;) Sést á einni myndinni.</description>
Allt er gott sem endar vel... eða hvað..
      <description>Já Sælinú.Núna erum við skötuhjúin stödd í Antwerpen í Belgíu á rosalega fínu hosteli. Dvölin í Amsterdam er búin að vera svolítið spes. Við vörum á hóteli seinasta mánudag sem heitir Bastion Hotel, þar blogguðum við seinast. Gistingin sem við fengum svo var fín, þetta var bara heimafólk sem var með svona "Bed And Breakfast" dæmi. Fín rúm og ekkert út á það að setja.Um daginn fórum við svo niður í bæ og löbbuðum um og skoðunum. Dagurinn var hreint út sagt æðislegur. Fórum og skoðunum berar stelpur og skoðunum aðeins í búðir, villtumst inn með breskum hóp á "Live Sex Show", fengum það svo ódýrt að það var ekki hægt að sleppa því,,,, he he. Svo um svona 11 leytið förum við heim og þegar þar er komið ætla ég rétt að kíkja á bílinn. Ég grínast svo við Hlín og segi "jæja bíllinn er þó alla vega ennþá þarna", en svo sér Hlín að glugginn í farþegahurðinni var brotinn...Hjartað sleppti svona einu til tveimur slögum, ég hleyp að bílnum og sé að hurðin er opin. Ég hafði ekki einu sinni pælt að það var ekkert dót enn í honum. Enn meira hissa. Ég sá að það var búið að spenna hanskahólfið upp. Það voru glerbrot útum allann bílinn en bíllinn samt ekkert skemmdur. Fyrir utan rúðuna að sjálfsögðu.Við rekum svo andlitið í miða. Á miðanum stendur að lögreglan í Noord, hverfið sem við gistum í hafi fundið bílinn svona og tekið restina af dótina sem var í bílnum. Við setjumst inn í bíl, ég í framsætið og hlín aftur í og bíllinn staðinn flatur niður á lögreglustöð.Það var reyndar búið að loka lögreglustöðinni þegar við komum þangað en maðurinn sem var á vakt var svo góður að hleypa okkur inn og kallaði út mannskap. Þegar við komum inn á lögreglustöðina þá fengum við að sjá restina af dótinu. Svona fljótt á litið fannst okkur það eina sem vantaði var dótið úr hanskahólfinu og matartaskan okkar. Ég var svona búinn að sætta mig við tapið þegar við fórum svo að leita betur og komumst að því að EKKERT var tekið úr hanskahólfinu, radarvarinn minn var þar og ýmislegt annað dót sem var nú kannski ekki verðmætt en engu að síður.Þannig það eina sem þessir djöfulins niðursetningar hafa komist með í burtu er maturinn okkar, þurr íslenskur matur, bakaðar baunir, núðlur, pasta, vatn og 3x bjórar... Djöfull hefði ég viljað sjá svipinn á þeim þegar þeir hlupu með þessa þungu tösku haldandi að þeir voru aldeilis komnir í feitt. Eina sem var í matartöskunni sem ég sakna eru nokkrir BMW varahlutir sem eru verðmetnir á svona 10-15 þúsund, en tryggingarnar borga það.Ok, þannig skaðinn var ekki mikill fyrir okkar. En auðvitað er rúðan brotin. Lögregluskýrsla er tekin og við fáum dótið afhent, ég fæ hjá þeim plastpoka og fer og loka fyrir gatið. Svo spyr ég hvort ég megi ekki skilja bílinn eftir og það er ekkert mál.Svo þegar við förum að búa okkur undir að fara labba með farangurinn þennan 1.0 km sem var á hostelið þá bjóðast þeir til að skutla okkur. Sé lögregluna heima bjóða upp á svona þjónustu. Lögreglan þarna var bara nice og kom virkilega vel fram við okkur. Lögreglumaðurinn sagði einnig að hann vonaði að þessir gaurar fengju hressilega í magann af Íslensku Kjötsúpunni okkar.Nóttin eftir þetta var svolítið skrýtin. Hlín svaf ekki mikið en ég var svo örmagna að ég lognaðist útaf fljótlega. Daginn eftir var svo hringt í tryggingingarnar og var konan á hostelinu svo elskuleg að leyfa okkur að hringja. Þar fékk ég bara nei. Ég er ekki með kaskó þannig tjónið er ekki bætt. En auðvitað fæ ég farangurinn og það bætt, þannig maður verður bara að reyna fá einhvað til  baka í því. Það samtal endaði bara með allt í lagi bless og ég snéri mér bara í því að redda rúðunni.Lögreglan í Noord gaf mér upp "Touring Information" símanúmer sem ég hringdi í og útskýrði vandamálið okkar í. Þar var mér bent á fyrirtæki sem heitir Carglass og er mjög stórt í Hollandi, ég hringdi þangað og samdægurs var búið að setja Plexigler fyrir brotnu rúðuna til bráðabirgða. Orginal rúðan er ekki til, enda mjög spes rúða (lituð græn orginal frá BMW). Við fengum svo svar frá carglass að rúðan ætti ekki að koma fyrr en næsta mánudag, næstkomandi þ.e.a.s. Ok. Nennum ekki að bíða eftir því. Ég fór þá að hugsa, spurði þá að því hvort Carglass væri annars staðar í Evrópu,  já,,, ok flott, Belgíu? Já... Ok flott.Eigum sem sagt pantaðann tíma í nýja rúðu næsta mánudag í Brussel, rúðar tilbúin þar og allt í góðu. Gaf þeim upp verksmiðjunúmerið á bílnum þannig þeir eiga að geta reddað réttu rúðunni. Ef ekki.. Þá er Carglass í Frakklandi..  Maður er allt svo jákvæður.Þannig núna erum við bara sitjandi í Antwerpen að skrifa til ykkar. Seinustu dagar eru búnir að vera svolítið erfiðir en maður sér alla vega fyrir endann á þessu.Amsterdam var annars bara rosalega skemmtileg borg, ég hafði nátturulega komið áður þarna og kunni vel við þar. Það rigndi reyndar allann tímann þarna og við fjárfestum í fínum regnhlífum sem voru ekki eins stórar eins og þessi ég sem var með.Við höfðum svolítinn tíma í Amsterdam þannig við náðum að skoða mikið. Fórum á Madam Tussoud safnið, Önnu Frank safnið, Riikjjjjj (??) Museum og í sightseeing bát um Amsterdam.Já gleymdi einu,,, Þar sem við gistum í Noord, sem var smá frá Amsterdam, og síki á milli þá gekk voðalega fínn bátur þarna á milli á korters fresti. Voðalega sniðugt ferðamáti og algerlega frír.Á morgun ætlum við að keyra aðeins um Belgíu og skoða, það eru bara 45 mínutur til Brussels þannig við þurfum ekkert að flýta okkar.Okkar langaði líka að biðjast afsökunar á því hversu lítið hefur heyrst í okkur,  bæði í síma og á blogginu.Bæði er dýrt að hringja og við höfum frekar takmarkaðann tíma á daginn til að blogga. Og á kvöldin er maður yfirleitt alveg búinn enda löbbum við flest allt sem við förum. Vonlaust að vera á bíl í stórborgum. Enda sér maður mikið meira fótgangandi.Ferðin hingað til Antwerp var hins vegar alveg ömurleg, það var umferðarteppa alla leiðina hingað. Það á að taka um 1 1/2 tíma. En tók svona 4-5... Ekki gaman og það var sjúklega heitt í bílnum Jæja núna er maður aftur búinn að missa sig í skrifunum, sem betur fer skrifa ég hrikalega hratt og þetta tekur ekkert of langann tíma. Endilega verið dugleg að kvitta fyrir ykkur. Gaman að lesa álitin ykkar.</description>
Hamburg - Berlin - Amsterdam
      <description>Jæja núna er orðinn svolítið síðan seinast heyrðist í okkur.Það er búið að vera rosalega mikið að gera hjá okkur, við fórum til Hamburgar eftir að hafa náð í bílinn miðvikudaginn seinasta.  Við eyddum deginum í Hamburg í dýragarðinum sem er þar, hann er rosalega flottur og kostar mjög lítið inn í hann. Það er frá voðalega litlu að segja þann dag en Guðjón bauð okkur svo að koma til sín til Berlínar þar sem hann var með nokkra viðskiptavini í viðskiptaferð þar. Auðvitað þáðum við 3 daga ókeypis gistingu þannig við brunuðum bara inn á næsta "rúmfatalager" og keyptum þessa fínu vindsæng. Sem svo endaði með að vera held ég þægilegri en rúmið og Guðjón neitaði að sofa á öðru en henni.Við ætluðum ekki að fara til Berlínar strax, við ætluðum að taka hana á leiðinni frá Póllandi en við ákvaðum bara að skella okkur þar sem þetta var ekki nema 300 km frá Hamburg,Við skoðunum Berlín hátt og lágt enda bæði búin að læra rosalega mikið um söguna sem hefur átt sér stað þar.Við skoðunum auðvitað Brandenburgarhliðið, Checkpoint Charlie(safnið þar er mjög áhugavert, kem með myndir þaðan seinna), Berliner Dom - Rosalega gaman að koma þar, kostaði lítið inn og maður fékk að fara upp í "dómuna" í kirkjunni og fékk útsýni yfir alla borgina. Einnig var grafhýsi undir kirkjunni þar sem aðallinn var jarðaður. Rosalegar kistur þar og rosalega áhugavert að skoða þar.Minnisvarðinn um Helförina - Þetta eru 2700+ steinkistur sem er búið að raða í mismunandi hæðir og hóla til minningar um Helförina. Svo er safn þar undir sem tók svolítið á mann, bréf frá fólki sem var í Auscwitz og aðrir miður glaðlegir hlutir.Sony Center - Þetta er svona City in a City, það er allt þarna, fórum í svona 3D sýningu frá IMAX, 45 mínutna mynd um risaeðlur á þýsku, ótrúlega gaman að vera með svona þríviddagleraugu eins og hálviti og sjá dýrin koma bókstaflega útum skjáinn.Fullt í viðbót sem ég man ekki alveg í augnablikinu, Þannig overall var Berlín bara frábær borg, ég reyndar mæli ekki með því að keyra í borginni.  Ákváðum eitt kvöldið að keyra niður í miðbæ og fá okkur að borða , það endaði ekki betur en að við keyrðum eins og fávitar útum allt, fundum nokkra staði en engin bílastæði. Þannig við fórum bara í fílu og átum á ítölskum stað sem var þarna við hliðina sem okkur líkaði vel við. Fengum líka eina stöðumælasekt sem gekk alveg herfilega að borga, eyddum tveimur tímum að keyra á milli banka og annara staða og loksins þegar ég náði að borga hana var það á pósthúsi , og ástæðan af hverju ég var þar inni var að ég var að spyrjast fyrir hvar ég gæti borgað þetta (var að leita af sérstökum banka sem var titlaður á sektinni) Stöðumælasekt upp á heilar 5 Evrur...  Vildum lika bara þakka Guðjóni kærlega fyrir að leyfa okkur að gista á þessu fancy smancy hóteli :) Þetta var rosalega gaman og frábært að þurfa ekki að hafa áhyggjur af gistingu.Dagurinn í dag fór svo í að keyra til Amsterdam, við ætluðum þaðan frá Hamburg þannig við ákváðum bara að skella okkur þangað og halda dagskránni óbreyttri. Þetta voru um 700 km sem reyndust nú frekar seinfarnir. Rigndi ALLA leiðina, þá er ég ekki að tala um skúrir. Það var eins og einhver hefði bara sturtað Atlantshafinu yfir helvítis landið í allann dag. Þegar við loksins komum svo til Amsterdam þá fórum við í að leita okkur að gistinu, það gekk ekki betur en að við enduðum á hóteli í Noord (rétt fyrir utan Amsterdam) og þurftum að punga svolítið út fyrir þeirri gistingu. En hins vegar þá var þráðlaust net hérna þannig við náðum að græja gistinu fyrir næstu daga. Fundum gistinu í Amsterdam í tvær nætur fyrir það sama og þessi eina kostaði. En þegar við fórum að skoða betur álitin á gististaðnum þá kom í ljós þetta væri bara heimagisting heima hjá einhverju fólki. En flestir voru nú sæmilega ánægðir með þetta þannig vonandi verður þetta í lagi, við þurfum bara rúm til að sofa á og that's it. Við ætlum að vakna snemma og finna þennan stað og leggja bílnum þar, tókum þennan stað sérstaklega þar sem það er frítt að leggja bílnum. Kostar $$$$ að leggja inn í Amsterdam, þ.e.a.s ef þú finnur stæði.Jæja ég held að þetta sé komið nóg í bili. Það vonandi líður ekki svona langt þangað til við bloggum næst. Við förum til Belgíu og Lúx þegar við verðum búin með Amsterdam. Ætlum að taka því rólega bara þar þangað til við ráðumst á París, þurfum að skipuleggja hana vel þar sem hún er svo dýr.Kær Kveðja Hlín og Gunni ;)Ps, reyni að setja inn nýjar myndir fljótlega, erum með alveg búnka að bæði áhugaverðum og fyndnum myndum. (ein mynd af mér klípa í brjóstin á Angelinu Jolie... </description>
Enn i Sverige
      <description>     Jaeja vid aetludum ad blogga örlítid ádur en vid förum til Danmerkur. Thessi dvöl okkar i Svíthjód er búin ad vera rosalega fin. Agaett ad geta slappad adeins af adur en gedveikin byrjar.Seinasta fimmtudag forum vid a syningu med Steina, Macbeth. Syningin var a itolsku og texti a saensku thannig thid getid imyndad ykkur hvad vid skildum mikid. Plus ad thessi syning var svolitid ruglingsleg. En engu ad sidur var thetta virkilega skemmtilegt, serstaklega eftir a thegar thad var buid ad tilkynna okkur um hvad syningin var... A fostudeginum forum vid svo til köbenhavn... Roltudum thar um eins og sonnum ferdamonnum ber ad gera. Voru i skó leit handa dekurdósunum Kötu og Àstu, systrum hennar Hlínar. Vid forum svo i Tivoli um kvoldid. Hlin fekk i magann i odru taeki thannig eg hljop um einn i oll taeki eins og halviti. Var lang elstur og leit svona ut eins og perrarnir i oskjuhlidinni. Svo jafnadi hlin sig i mallanum og vid forum i litid parisarhjol og russibana og fleira skemmtilegt.Hapunkturinn var samt klarlega fallturninn ogurlegi, ekki thad ad hann hafi verid einhvad ogurlegur en utsynid var vodalega gott. Hefdi verid til i ad fa ad hanga thar uppi i dagoda stund til ad skoda. En thad entist stutt...  A laugardeginum leigdi Steini svo bil og vid forum i thennan fina biltur. Planid var ad fara a einhvern ofurfinann pizzustad sem reyndist svo vera lokadur. En endudum inn a thessum fina "sveita"restaurant og fengum alveg magnadar steikur. Virkilega godur matur og audvitad at madur alltof mikid eins og sonnum matgaedingi saemir. I dag var okkur bodid med i afmaelisveislu til kunningja Steina sem vard 54 ara. Hann fekk tha flugu i hofudid ad leigja bíósal og bjoda folki ad horfa a My Fair Lady med Audrey Hepburn. Eg helt ad thetta yrdi eintom pina en svo reyndist nu ekki. Virkilega fin mynd og ekki a hverjum degi sem madur faer ad sja svona gamlar myndir a tjaldi.Vid hofum bara verid ad pakka i kvold. Fottudum svo audvitad ad vid erum buin ad kaupa svo mikid ad Steini tharf ad lana okkur auka tosku. Ekki ad thad hafi ekki verid nog af rogast med tvaer hingad. Hlin verdur tha bara ad bera sina til baka .. hehe.Vid aetlum ad leggja af stad til Danmerkur a morgun um hadegid. Stefnum ad thvi ad vera hja Evu Björk um matatima. (rett fyrir hann alla vega.. )Saekjum bilinn svo a thridjudaginn til Schmiedmann og tha getum vid farid ad hefja ferdina fyrir alvoru. Mig hryllir reyndar vid ad thurfa pakka aftur i bilinn thar sem thad var ekkert smaraedi i byrjun. Get ekki imyndad mer hvernig thetta verdur nuna. Vid thurfum kannski ad fa okkur tengdamommubox... Annars er thetta bara buid ad vera aedislegt i Svitjod og fint ad slappa adeins af. Tho thad hafi nu verid erfitt ad hemja verslunarvillinginn en madur fekk ad sofa adeins ut inn a milli.Vid forum ad setja hrugu af myndum inn fljotlega og jafnvel einhver video. Gaman ad heyra alitin ykkar.Mest bestu kvedjuHlin og Gunni.</description>
Sverige
Danmark
      <description>Jæja er ekki kominn tími á nýja færslu frá okkur. Ferðin hefur gengið bara mjög vel til þessa og ekkert komið uppá. Við erum núna í Sæby í Danmörku í einhverri skemmtilegustu gistingu sem ég hef nokkurn tíma komið í. Við þurfum reyndar að borga örlítið fyrir þetta þar sem við vorum komin í svolítið klandur með gistingu. Við erum sem sagt í svona "Hutteby" , lítill sveitabær hér rétt fyrir utan Frederikshavn. Ferðin í Norrænu gekk bara mjög vel, við lentum reyndar í svolítið vondum sjó á milli Þórshafnar og Bergen, það var norðanátt allan tímann og báturinn lamdi vel í öldurnar á leiðinni. Heyrðum eina sögu frá kalli sem gunni var að tala við að það hafi verið fullt af fólki á barnum það kvöld og í einni öldinni tæmdust öll borðin á barnum og allt útum allt.Við lentum líka í því inn í herbergi að Gunni flaug af stólnum þegar hann var einhvað að nördast í tölvunni sinni og rúllaði yfir þvert herbergið.. Leiðinlegt að eiga ekki video af því.. (America's funniest next boat video)Gunni lenti svo líka í að það var gengið inn á hann ((((rassberann))) af þernunum en hann rétt náði að bjarga sér inn í skáp. Þetta skeði sem sagt í morgun þegar við áttum að fara tæma herbergið, það átti sem sagt að tæma káetuna klukkutíma fyrir aðkomu en það var ekkert sagt í kallkerfinu, þannig þegar við vöknuðum höfðum við hálftíma til að koma okkur út og ganga frá dótinu okkar, vorum búin að pakka að mestu.Færeyjar og Bergen voru mjög fínir staðir. Hlín fann sér einhverjar búðir til að skoða í þó henni hafi ekki tekist að versla neitt. Sem er ágætt.... (nema hún keypti sokka handa mér..) (það er svo auðvelt að versla handa þeim sem á ekki svona mikið af fötum)Við tókum fullt af fyndnum myndum í Færeyjum af asnalegum skiltum og merkingum, svo sem búðinni "Gellan" og "Reyða Krossinum". Já og svo var maður sem var með skilti fyrir utan húsið hjá sér og hann greinilega vann sem grannskoðari , hvað svo sem í ósköpunum það starf gerir... (don't want to know)Við eyddum svo deginum í dag í Frederikshavn með mömmu og einhverjum konum sem hún þekkti. Hún sem sagt tók ferju frá Larvik, kona sem hún þekkir sem vinnur í ferjunni og hún fékk að skjótast yfir með. Fórum út að borða á rosalega huggulegt veitingahús.Á morgun keyrum við svo í Legoland, ætlum að sjá hvernig við eyðum deginum, erum ekki alveg að tíma miklum pening í aðgangseyri þar inn en ef ekkert annað verður að gera þá kíkjum við kannski. Á mánudaginn brunum við svo niður til Nordborg þar sem bíllinn fer í make-up og svo er bara næst á dagskrá að finna útur því hvernig við komumst þaðan til Svíþjóðar. Ætli við reynum ekki að fá leiðbeiningar í Nordborg um það bara. Getur ekki verið það flókið.Nóg langloka í bili , reynum frekar að blogga oftar, það er ekki dýrt að leigja svo wireless network í nokkra tíma hérna úti. Á staðnum sem við erum kostar um það bil 250 krónur kvöldið. Ætlum að reyna setja nýjar myndir í myndaalbúmið í kvöld þannig þið getið flett yfir það.Hlökkum til að heyra í ykkur og endilega verið dugleg að skrifa til okkar.Kær kveðja frá ævintýraförunum.</description>
Seyðisfjörður
      <description>HowdyNúna er við komin til Seyðisfjarðar. Við lögðum af stað í morgun klukkan 10 og tókum okkur bara fínan tíma á leiðinni. Við stoppuðum slatta og skoðunum og tókum myndir hér og þar. Komum við í jökulsárlóni og sáum einn ísjakann velta, var svolítið magnað.En ég ætla bara að hafa þetta stutt héðan úr krummaskuðinu Seyðisfirði þar sem ekkert er merkt og maturinn vondur.. Nei nei þetta er voðalega fínt, hostelið okkar er það fínasta og ég meira segja get rænt netinu frá einhverjum hérna í nágreninu, svona er þegar þessir sveitalúðar kunna ekkert á w-lanið sitt... Bíllinn stóð sig eins og hetja og meira segja þegar við fórum yfir Öxi. Sem var nú furðu góð miðað við árstíma.Mældi meðaleyðsluna á bílnum og hún var í kringum 8.8/100 kmBáturinn fer svo klukkan 5 á morgun og ætli við dútlum okkur ekki bara hérna einhvað frma eftir degi, þríf kannski bílinn til að drepa tímann.</description>
Change of plans
      <description>    Jæja , ferðin byrjar aldeilis vel hjá okkur     Ég er búinn að vera í sambandi við Vegagerðina núna í dag og í gær og  mér var tjáð að færðin norður væri engan veginn góð og hvað þá fyrir  svona sleða eins og við erum á.     Erum búin að panta okkur gistingu á Seyðisfirði á morgun (þriðjudag)  ((Hlín á afmæli)) og við leggjum af stað þá bara snemma um morguninn og  getum því tekið okkur tíma og skoðað aðeins. Ef veðrið verður sæmilegt  kíkjum við kannski á álverið ógurlega á Reyðarfirði.    Heyrumst seinna     </description>
Ferðaáætlun
      <description>    Ákvað að búa til bara nýja færlsu sambandi við svona grófa ferðaáætlun  hjá okkur svo þetta verði ekki eins mikil samloka að lesa.    Planið hjá okkur er svona að mestu leyti neglt niður, við erum þó  reyndar ekki með skeiðklukkuna á lofti og ætlum að leyfa þessu að reika  svolítið að sjálfu sér.  Nennum ekki að gera neina tímaáætlum sem maður endar alltaf á því að missa niðrum sig og stressa sig í kaf yfir.    Ferðina mun alla vega byrja á því að "reyna" koma til Akureyrar  næstkomandi mánudag, en eins og veðurspáin hefur verið upp á síðkasti  er ekki víst að snjóhefillinn minn drífi þangað...  Stefnan er  alla vega sú að reyna keyra hringinn á endanum, byrja á Akureyri, gista  þar í eina og hálfa nótt, eða svo, seinni nóttina þyrftum við að leggja  af stað mjög snemma. Fara svo þegar við komum til baka suðurleiðina,  þannig að við myndum ná einum hring í kringum landið svona allt í allt.      En eins og ég sagði, ef veðrið verður það slæmt þá bara förum við suðurleiðina og gistum jafnvel eina nótt á Seyðisfirði.    Fyrsta stoppið verður auðvitað hjá frændum okkar í Færeyjum og hlakkar okkur mikið til að skoða Reiða Krossinn og Sparikassann.    Þegar við komum svo loksins til Danmerkur eftir 3 daga gláp á  ferðatölvuna og alla þættina sem eru þar þá verður stefnunni haldið til  Schmiedmann í Nordborg í Danmörku. Þar fer bíllinn í smá check og verða  keyptir sílsar og læst drif og fleira gotterí sem enginn nennir að lesa  hvað er.    Meðan á þeirri aðgerð stendur munum við fara til Malmö í Svíþjóð til  pabba hennar Hlínar, hann ætlar að vera með okkur í nokkra daga og  munum við væntanlega fara til Köben og skoða Norðurlöndin einhvað.    Þegar því er svo lokið og bíllinn orðinn 100% tilbúinn keyrum við niður  til Hamburgar og byrjar ferðina þá eiginlega þar. Við ákváðum að taka  rangsælishringinn á Evrópu, það er segja að byrja á Þýskalandi , taka  svo Holland, Belgíu, Lúx og svo Frakkland.     Við munum svo eyða 3-4 dögum í París þar sem við höfum margt að skoða  þar. Svo er stefnan tekin á ríveruna í Frakklandi og niður til Monaco.     Þaðan ætlum við svo til Ítalíu og við ætlum að fara neðst í þann skó  til Pompei (held það sé skrifað svona) Stoppum auðvitað í Róm og fleiri  borgum. Endum svo í Feneyjum.    Þaðan förum við örlítið inn í Austurríki og við erum reyndar ekki alveg  ákveðin hvort við eigum að keyra í gegnum Tékkland og beint inn í  Pólland eða hvort við eigum að taka neðri hlutann af Þýskalandi og fara  svo upp Þýskaland og þaðan inn  í Pólland, ætli við ákveðum það  ekki bara þegar nær dregur.     En í Póllandi höfðum við hugsað okkur að stoppa í nokkra daga í Kraká,  skoða það Auschswitz (reyndi þó) og saltnámurnar þar og ýmislegt annað.  Svo líka þegar ég sagði Hlín hvað pólverjarnir í vinnunni hjá mér hefðu  sagt að það væri svo ódýrt að versla þar að þá vildi hún ólm komast  þangað.   Við gerum okkur þó grein fyrir því að við verðum að passa okkur í  Póllandi og er búið að benda mér á nokkur hótel þar sem við getum geymt  bílinn inni og haft góð öryggishólf.    Eftir Pólland keyrum við aftur til Þýskaland og svo verður stefnan  tekin á Svíþjóð, gæti verið að við stoppum eina nótt hjá pabba hennar  Hlínar aftur, en svo förum við sem sagt til Noregs við hennar móður  minnar og eyðum seinustu dögunum okkar þar. Reynum að skoða Norge  eitthvað og hver veit nema maður skelli sér á jökul og rifji upp gamla  skíðatakta. (Þarf reyndar að passa mig nú að fótbrjóta mig ekki svo við  komumst aftur heim )    Tökum svo Norrænu aftur til baka frá Bergen í Noregi og ætti ferðinni þá að vera lokið um það bil.    Endilega ef þið hafið einhverjar uppástungur eða ráðleggingar þá getiði  sett þær hér í álit eða sent mér mail á "// gunnilar [ at ] gmail.com  //" (vil ekki fá spam)    Ps, setti líka inn albúm með myndum af bílnum ef einhver hefur áhuga.  Kannski full margar og full flóknar en það verður bara að hafa það.    Nóg af bulli í bili.    </description>
5 dagar!
      <description>      Núna styttist óðum í ferðina og allt fer að verða klárt. Við erum búin  að redda svona mest öllu því sem við þurfum fyrir þetta ævintýri og það  er bara svona smáhlutir sem eru eftir. Bíllinn er kominn á númer og með  08' skoðun, athugasemdalaust   Búið að vera mikið strit að koma honum saman fyrir þessa ferð, tíminn  var ansi fljótur að hlaupa frá manni og fóru páskarnir í samsetningu.     Tilgangurinn með þessari færslu var svona aðeins að segja frá því  hvernig þessi ferð kom upp á hjá okkur.  Þegar ég og Hlín kláruðum  skólann vorum við sammála um að við nenntum ekki bara vera að vinna  hérna heima og bíða eftir háskólanáminu. Okkur langaði að ferðast  einhvað og prufa eitthvað allt ananð.Á þessum tíma vorum við jafnvel að  hugsa um að flytja út og prufa jafnvel að vinna í öðru landi. Ástralíu  eða einhverju slíku.  Við munum svo hvorug hvernig  hugmyndin fæddist að Evrópureisunni en hún kom þarna einhvern tíma  eftir að við vorum farin að láta hugann reika um hvað skyldi gera í  millitíðinni þangað til við færum í skóla.    Það hafa margir bent okkur á hvort þessi ferð sé ekki tilkomin á  kannski svolítið röngum tíma, þar sem við erum líklegast að fara  flytjast til Akureyrar í háskólann þar og það kostar auðvitað svolitla  peninga. En fyrir okkur kemur þessi ferð einmitt á hárréttum tíma, því  við skiljum í rauninni engar áhyggjur eftir hér heima, við erum bæði  búin með skólann, ekkert mál að fá frí úr vinnunum og við höfum ekkert  barn eða íbúð eða afborganir til að hafa áhyggjur af.  Önnur  ástæðan er nátturulega að þegar við erum búin með háskólann að þá tekur  auðvitað við að fara reyna borga niður námslánin, fara fá sér vinnu og  maður fer að íhuga íbúða(húsa) kaup og allur sá pakki..      Auðvitað mun maður þurfa að hafa svolítið fyrir því að borga upp  ferðina en það er samt ekkert sem við setjum fyrir okkur. Við erum bæði  dugleg að vinna og við stefnum að því að taka fyrsta árið í háskólanum  bara svolítið rólega og reyna lifa svolítið sparsamlega.               </description>
13 dagar!! :)
      <description>jæja það styttist í ferðina okkar og við erum eiginlega ekki búin að redda neinu. eigum eftir að fá visa-kort og eitthvað kort fyrir bílinn.. erum ekkert farin að plana hvað við ætlum að taka með .. þetta er alveg rosalegt.. en við klárum þetta vonandi um páskana.. við eigum líka eftir að sækja um háskóla áður en við förum og ég þarf að taka verklega bílprófið (btw, þá tók ég bóklega í vikunni og náði!! :) þannig eg verð nú vonandi komin með bílprófið góða þegar við förum út. annars er lítið annað í gangi en að stressast og klára bílinn, gunni greyið hefur varla sofið uppá síðkastið því hann er að vinna allar nætur að púsla bílnum saman.. en þetta er allt að koma.. ætlum að setja myndir hérna inná þegar hann verður ready ;)sé ykkur seinna sykurpúðar kv. Hlínsa :)</description>
Fyrsta færslan
      <description>Jæja þá er bloggið loksins komið upp.Tilgangurinn með þessari síðu er að leyfa vinum og vandamönnum að fylgjast með ferðinni okkar til Evrópu. Við ætlum að reyna vera voðalega dugleg í að uppfæra hana meðan við erum úti og munum nota hvert tækifæri til þess að henda inn nýjum myndum.Við verðum einnig með gestabók hér svo fólk geti skrifað kannski smá kveðju til okkar sem við getum lesið úti (fjandi dýrt að hringja alltaf heim þessa tvo mánuði sem við verðum úti... Látum þetta nægja að sinni.Kveðja.Hlín og Gunni   </description>